skipun rannsóknarnefndar um sölu Íslandsbanka.
Forseti. Nú þegar skýrsla ríkisendurskoðanda um söluna á hlut í Íslandsbanka er loksins orðin opinber sitjum við enn uppi með ótal spurningar. Við spyrjum okkur enn að því hver eigi að axla ábyrgð á þeim fjölmörgu og fjölþættu annmörkum sem augljóslega voru á undirbúningi og framkvæmd sölunnar. Við spyrjum okkur enn að því hvort fjármálaráðherra hafi verið skylt að fara yfir tilboðsbókina sem Bankasýslan færði honum til samþykkis. Við spyrjum okkur enn að því hvort fjármálaráðherra beri enga ábyrgð á að hafa samþykkt kauptilboð frá föður sínum. Og við spyrjum okkur enn að því hvort hæstv. fjármálaráðherra hafi uppfyllt eftirlitsskyldur sínar með söluferlinu og sömuleiðis hvort hann hafi yfir höfuð staðið löglega og rétt að sölunni.
Þetta eru spurningarnar sem við eigum eftir að fá svör við, langmikilvægustu spurningarnar, þrátt fyrir að nú séu heilir átta mánuðir liðnir frá bankasölunni. Það versta við þetta hlýtur samt að vera hvernig það var ljóst allt frá upphafi að ríkisendurskoðandi gæti aldrei svarað þessum spurningum, gæti aldrei svarað þeim fyrir okkur. Þess vegna hefði átt að skipa rannsóknarnefnd alveg frá upphafi, rannsóknarnefnd sem hefði getað svarað langmikilvægustu spurningunum, rannsóknarnefnd sem stjórnarandstaðan sameinaðist um að væri nauðsynleg til að fá einhvern botn í þetta mál.
Í ljósi orðræðu þingflokksformanns Vinstri grænna og orðræðu forsætisráðherra sjálfs og annarra um að ef skýrsla ríkisendurskoðanda væri ófullnægjandi þá væri hægt að skoða það að setja á fót rannsóknarnefnd þá langar mig til að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Styður hún núna að rannsóknarnefnd á vegum Alþingis verði falið að rannsaka þessa þætti og aðra (Forseti hringir.) sem út af standa í þessu risavaxna hagsmunamáli fyrir almenningi? Þetta er bara ein spurning, já eða nei. (Forseti hringir.) Styður forsætisráðherra rannsóknarnefnd?