153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

skipun rannsóknarnefndar um sölu Íslandsbanka.

[15:15]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mig fer að gruna að skýrsla Ríkisendurskoðunar hafi valdið einhverjum hv. þingmönnum vonbrigðum, sem kemur mér á óvart því að þetta er góð skýrsla. Þó að hún hafi verið margboðuð og komið heldur seinna en ég hefði kosið verð ég að segja að mér finnst hún efnismikil. Mér finnst satt að segja kúnstugt að hv. þingmenn komi hingað upp í pontu og vilji strax fara í aðra rannsókn áður en hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd gefst einu sinni færi á að fjalla um skýrsluna. Það segir mér kannski að einhverjir séu búnir að gefa sér niðurstöðuna áður en vinnunni er lokið.

Það sem ég sagði hér í vor og stend við er að mér finnst mjög mikilvægt að hér sé allt uppi á borðum. Mér finnst þessi skýrsla, og hv. þingmaður kann að vera mér ósammála, svara mjög mörgum af þeim spurningum sem voru uppi í vor. Mér finnst vinnan vönduð. Það er vitnað til þess að þessi mál séu áfram til skoðunar og ákveðinn hluti ferilsins hjá Seðlabanka Íslands og mér finnst líka eðlilegt að þingið fari yfir það þegar þau mál koma fram. Það er ekki þannig, þó að hv. þingmaður telji kannski svo vera, að það sé neinn vilji til að vera í feluleik með nokkurn skapaðan hlut hér.

Ef ég ætti að segja mitt mat þá myndi ég segja: Þessi skýrsla er nokkuð sem við eigum að taka alvarlega. Þarna eru verulegir annmarkar. Ég sagði hér í vor að ég teldi að endurskoða þyrfti fyrirkomulag þessara mála frá grunni. Við erum hér með stofnun sem veitir stjórnvöldum ráðgjöf um hvernig halda eigi á þessum málum, leggur til tiltekna aðferð, byggir það á reynslu erlendis frá. Þeirri ráðgjöf er hlýtt og síðan, þegar ráðist er í framkvæmdina, virðist sem þekkingin á þessari aðferðafræði sé kannski engan veginn nægjanleg hjá stofnuninni sem á að fara með framkvæmd málsins. Ræðum þessi efnisatriði hér. Mér finnst hins vegar ekkert kalla á það að ég telji að Ríkisendurskoðun hafi ekki staðið sig í stykkinu við gerð þessarar skýrslu.