skipun rannsóknarnefndar um sölu Íslandsbanka.
Forseti. Ég ætla að biðja hæstv. forsætisráðherra að leggja mér ekki orð í munn. Ég hef aldrei sagt að þessi skýrsla sé ekki góð. Þessi skýrsla er bara mjög góð. Þótt hún svari ekki mörgum spurningum þá sýnir hún t.d. svart á hvítu fram á stórfellt gáleysi gagnvart hagsmunum og eigum almennings, ekki aðeins af hálfu Bankasýslunnar heldur líka fjármálaráðherra. Í raun er furðulegt að hann skuli enn þá sitja sem fjármálaráðherra á meðan verið er að rannsaka þetta stórkostlega gáleysi.
En það var ekki spurningin mín. Út af því að ríkisendurskoðandi hefur ekki þær heimildir sem þarf til þá tekur skýrslan skiljanlega ekkert á lagaábyrgð fjármálaráðherra. Svörin sem við fengum frá stjórnarliðum þegar við ræddum þetta mál seinast var að ef einhverjum spurningum yrði ósvarað þá myndu þeir svo sannarlega styðja rannsóknarnefnd. Fullt af spurningum er ósvarað — fullt af þeim — sérstaklega þegar kemur að lagaábyrgð fjármálaráðherra. (Forseti hringir.) Ég spyr: Mun hæstv. forsætisráðherra styðja að þingið fái þau svör sem það leitast eftir að fá?