153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

skipun rannsóknarnefndar um sölu Íslandsbanka.

[15:19]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mér finnst mjög eðlilegt að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fari núna yfir málið og fari einmitt yfir það hvort það séu einhverjar spurningar sem ekki fást svör við eftir að hafa farið vel yfir þessa skýrslu. Mér finnst ekki bragur á því að koma hér upp sama dag og þessi skýrsla er birt og telja að nú þurfi frekari rannsóknir, án þess að við séum búin að fara efnislega yfir málið. Mitt mat er það, eftir að hafa farið yfir þessa skýrslu, farið yfir athugasemdir sem bárust síðan frá fjármálaráðuneytinu t.d., að mjög mörgum spurningum af þeim sem voru uppi hér í vor sé svarað og ég verð að segja að mér finnst þetta góð vinna. Það mun svo koma fram á réttum vettvangi, sem er í meðferð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, hvort frekari spurningum sé ósvarað.