traust á söluferli ríkiseigna.
Virðulegi forseti. 75% landsmanna voru sammála okkur í Viðreisn um að það ætti að skipa rannsóknarnefnd um söluna á Íslandsbanka. Meiri hlutinn hérna á þingi féllst hins vegar ekki á það en sagðist styðja slíka skipun ef spurningum væri ósvarað eftir skýrslu ríkisendurskoðanda. Núna hefur Ríkisendurskoðun skilað sinni skýrslu og hún segir sjálf að stjórnsýsluúttekt stofnunarinnar sé ekki tæmandi rannsókn á sölunni, þ.e. ákveðnum þáttum er ekki svarað. Ekki hvort önnur söluaðferð hefði verið betri, hún var ekki skoðuð. Ekki tímasetningin, hún var ekki skoðuð. Þá var hæfi fjárfesta ekki skoðað. Hæfi ríkisstjórnar og ráðherrans var ekki skoðað í vandaðri vinnu Ríkisendurskoðunar.
Það voru fjölmargir annmarkar á sölu ríkisstjórnarinnar á Íslandsbanka. Með öðrum orðum nokkurt klúður. Í niðurstöðu skýrslunnar segir að standa hefði mátt betur að sölunni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlutinn. Ákvörðun um að selja á undirverði hefði síðan verið tekin til að ná fram öðrum markmiðum en lögbundnum en þau markmið klúðruðust líka. Jafnframt hefði huglægt mat verið látið ráða því hvernig fjárfestar voru flokkaðir og orðsporsáhætta af söluferlinu var vanmetin. Þá kemur skýrt fram að hugtakanotkun og upplýsingaráðgjöf fjármálaráðuneytisins til þingsins hafi m.a. gefið villandi mynd af sölunni, sem mér finnst afar alvarlegt. Samkvæmt skýrslunni ber að tryggja betri upplýsingagjöf þegar fjármálafyrirtæki í ríkiseigu eru seld til að ýta undir traust og ýta undir trúverðugleika. Sömuleiðis þurfi að setja skýr viðmið um matskennda þætti þannig að mat á úrlausn söluferla hvíli sem minnst á huglægum forsendum.
Í ljósi þessara annmarka sem koma skýrt fram í vandaðri skýrslu Ríkisendurskoðunar þá vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hvaða augum lítur ráðherra á það að þinginu séu gefnar ófullkomnar og misvísandi upplýsingar í svona stóru og miklu máli? Í öðru lagi velti ég fyrir mér: Er ríkisstjórninni treystandi á þessum tímapunkti til þess að fara í frekara söluferli á öðrum ríkiseignum? (Forseti hringir.) Hvað þarf að gera til þess að ríkisstjórnin byggi upp traust og trúverðugleika þannig að við getum tekið nauðsynleg skref í því að selja frekari ríkiseignir?