153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

traust á söluferli ríkiseigna.

[15:25]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja að það kemur mér ekki á óvart að hingað upp í pontu komi ráðherra, forsætisráðherra í ríkisstjórn, og segist ekki bera ábyrgð á neinu. Það er bara bent á Bankasýsluna, að það eigi að leggja niður Bankasýsluna og þá séum við í góðum málum. Það er engin ábyrgð tekin á þessu klúðri sem kemur fram í vandaðri skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Þegar ég talaði áðan um misvísandi og villandi upplýsingar þá var það nákvæmlega það sem Ríkisendurskoðun bendir á. Hún bendir á að það hafi verið miklir annmarkar á hugtakanotkun, á upplýsingagjöf fjármálaráðuneytisins til þingsins, og það á bara ekkert að gera með þetta. Þetta er hluti af því sem við erum að tala um, að við þurfum rannsóknarnefnd sem gefur okkur heildarmyndina. Fyrir mig er svo nauðsynlegt að hafa heildarmyndina svo að við getum tekið frekari og ábyrgari skref við að selja ríkiseignir af því að m.a. ríkissjóður hvílir á því á næsta ári að við getum selt meira í Íslandsbanka, 74 milljarðar. Á þá að fá enn og aftur lífskjörin að láni? Það er reyndar tíður siður hjá þessari ríkisstjórn að fá lífskjörin að láni til lengri tíma. En þetta er ekki boðlegt. (Forseti hringir.) Þetta var klúður. Við munum fara vel yfir þetta en við viljum fá heildarmyndina, ekki bara einhverja brauðmolakenningu sem ákveðin var af hálfu ríkisstjórnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)