153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

traust á söluferli ríkiseigna.

[15:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Nú leggur hv. þingmaður mér orð í munn þegar hún segir að það eigi ekkert að gera með þetta. Það var ekki það sem ég sagði. Ég sagði: Hér erum við komin með góða skýrslu, vandaða skýrslu og að sjálfsögðu þarf að gera eitthvað með það. Það þarf að fara yfir þetta.

Hv. þingmaður talar hér um sölu ríkiseigna. Nei, ég held ekki að þetta sé gott fyrirkomulag sem þarna er. Það var mín afstaða í vor og hún hefur svo sannarlega ekki breyst eftir að hafa farið yfir þessa skýrslu, svo sannarlega ekki. Ég held að það skipti máli að við horfumst í augu við það þegar við seljum hlut í banka, eins og við gerðum í vor. Þá ætla ég bara að rifja upp hver það var sem tók ákvörðun um að birta lista yfir kaupendur. Var það ekki hæstv. fjármálaráðherra sem ákvað að birta þann lista? Sýnir það einhvern vilja til að skjóta sér undan ábyrgð eða takast ekki á við það að veita upplýsingar? Nei, það sýnir einmitt þveröfugt. Ég ætla að leyfa mér að minna á að það voru aðrir sem vildu ekki birta þann lista, það var stofnunin sjálf sem vildi ekki gera það. En ráðherrann axlaði ábyrgð og hann sagði: Það skiptir máli að þessar upplýsingar komi fram — alveg eins og hann óskaði eftir þessari skýrslu.