153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

eingreiðsla til öryrkja.

[15:28]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Undanfarið hafa öryrkjar í miklum mæli leitað til hjálparsamtaka því að þeir ná ekki endum saman. Verðbólgan hefur gríðarleg áhrif á þennan hóp vegna lágrar framfærslu. Þessu verður að breyta strax og einnig að verja þennan hóp gagnvart verðbólgu sem hækkar verð á mat, leigu, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Nú kom fram í fjárlögum að vegna ofmats á nýgengi örorku var afgangur upp á 4 milljarða kr. Gæti hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagt mér hvort sá afgangur er til kominn vegna færri umsókna um örorku eða vegna þess að flestum er neitað um örorku? Vegna verðbólguhækkunar hefur fjárhagur flestra öryrkja versnað svo um munar. Einn einstaklingur sýndi mér að leigan hjá honum hefur hækkað um heila útborgun lífeyrislauna hans frá TR á þessu ári. Verðbólgan ein og sér hefur kostað hann einn mánuð af ráðstöfunartekjunum og er hann því alltaf í skuldasúpu og þar með jaðarsettur í fátækt.

Ég vil spyrja hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra: Er ekki í ljósi þessa tilefni til að greiða öryrkjum 13. mánuðinn og það strax? 13. mánuðurinn er rúmlega 200.000 kr. eftir skatta, það er nú ekki hærri upphæð en það. Ég spyr einnig hvort ríkisstjórnin ætti ekki að sjá sóma sinn í því að samþykkja breytingartillögu Flokks fólksins við fjáraukann sem tryggir öldruðu fólki og öryrkjum í almannatryggingakerfinu 60.000 kr. jólabónus skatta- og skerðingarlaust.

Við erum að ræða Íslandsbankaskýrsluna. Þar kemur fram að hægt hefði verið að fá 3 milljörðum meira fyrir bankann. Við erum með 4 milljarða afgang. Ríkisstjórnin er búin að spara sér tugi milljarða á því að draga lappirnar við að endurskoða almannatryggingakerfið. Ég spyr því ráðherra: Er ekki kominn tími til að ríkisstjórnin sjái sóma sinn í því að fátækasta fólkið okkar þurfi ekki að bíða í röð eftir mat?