153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

eingreiðsla til öryrkja.

[15:30]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og umræðuna hér um kjör örorkulífeyrisþega. Hv. þingmaður kom aðeins inn á verðbólguna sem hefur leikið ýmsa grátt. Einmitt þess vegna réðst ríkisstjórnin í það um mitt sumar að hækka greiðslur til örorku- og ellilífeyrisþega um 3%. Það var líka tekið á því sem snýr að húsaleigubótum sem voru hækkaðar um 10% og síðan barnabótaauki til ákveðinna hópa, þannig að ríkisstjórnin hefur vissulega mætt þessum hópi upp að einhverju marki hið minnsta. Síðan eru fyrirhugaðar hækkanir núna samkvæmt fjárlögum um ein 6% til þessara hópa frá og með 1. janúar næstkomandi til að halda í við verðbólguna.

Hv. þingmaður kemur líka inn á eingreiðsluna sem hann kýs að kalla jólabónus, við skulum ekki þræta um hvað það heitir. En henni hefur auðvitað síðastliðin tvö ár verið ætlað að mæta heimsfaraldri kórónuveirufaraldursins og núna í ár lagði ríkisstjórnin fram lægri upphæð en vissulega upphæð til að mæta þessu, sem er skatta- og skerðingarlaus. Ég heyri að það er áhugi á því hjá þingmönnum að gera betur þar og ég hef sagt að það muni ekki standa á mér að skoða það með þingmönnum ef út í það er farið.

Síðan er auðvitað stóra verkefnið sem við erum að vinna í þessi heildarendurskoðun. Ég vonast til að í þessari eða næstu viku komi ég með fyrsta frumvarpið sem lýtur að þeirri endurskoðun. Sú vinna gengur vel og við munum halda áfram að koma fram með frumvörp á næsta ári líka.