153. löggjafarþing — 30. fundur,  14. nóv. 2022.

eingreiðsla til öryrkja.

[15:32]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fyrir svörin. 3% í sumar. Hversu oft þarf maður að segja það, hvort sem það eru 3% í sumar og 6% um áramótin, að þetta skilar sér ekki í vasann vegna skerðingar kerfisins? Vegna keðjuverkandi skerðingar þá skilar þetta sér ekki. Það má þakka fyrir að einn þriðji af þessu skili sér í vasann hjá þeim. Öryrkjabandalagið gerir kröfu um 10% hækkun um áramótin. Nýjustu fréttir núna eru um biðraðir eftir mat hjá hjálparstofnunum en þegar búið er að taka saman það sem hægt er að gefa yfir daginn þá dugar það ekki fyrir alla, það er hópur sem fær ekki mat. Ég spyr: Ætlum við enn einu sinni að nota endurskoðun almannatrygginga sem einhverja hækju eða að einhver 3% inn í kerfið eða 6% inn í kerfið skili sér ekki? Hvernig væri nú einu sinni að sjá til þess að þetta verst setta fólk fái virkilega það sem það á að fá, (Forseti hringir.) a.m.k. verðbólguna bætta, þó ekki væri meira? Það stæði betur eftir verðbólguskotið heldur en fyrir. Það hlýtur að vera hægt vegna þess að þessar 60.000 kr. (Forseti hringir.) sem er verið að biðja um eru uppreiknaðar frá því í fyrra, uppreiknaðar miðað við verðbólgu.