lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.
Virðulegi forseti. Það er rétt að þetta mál hefur komið til kasta fjárlaganefndar. Þar var beiðni um lögfræðiálit, með ákveðnum lista spurninga, mikilvægra spurninga, hafnað. Ég tel það mjög miður að formaður fjárlaganefndar skyldi hafa hafnað þessu eða meiri hluti nefndarinnar. Þetta eru mjög mikilvægar spurningar og er mjög mikilvægt fyrir þingið að rannsaka þetta mál vel. Ef ríkisstjórnarflokkarnir ætla að keyra í gegn frumvarp fyrir áramót um að slíta ÍL-sjóði núna, þá mun það kalla á miklar skaðabótakröfur frá kröfuhöfunum, lífeyrissjóðunum. Það mun fara í gegnum íslenskt dómskerfi. Ef Hæstiréttur samþykkir ekki skaðabótakröfurnar þá mun málið fara til Strassborgar. Það er vissulega veikt eignarréttarákvæði í mannréttindasáttmála Evrópu, 1. viðauka. En ef dómstóllinn úti samþykkir ekki skaðabótakröfur á grundvelli skuldabréfs þá er það mannréttindaákvæði handónýtt. Þannig að þetta mál mun enda fyrir dómstólum ef ríkisstjórnarflokkarnir ætla að keyra lagafrumvarp hér í gegn fyrir jól.