lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.
Forseti. Ég vildi árétta það sem ég nefndi hér áðan varðandi þessar afsakanir meiri hlutans um að ekki sé tímabært að fá lögfræðiálit þegar fjármálaráðherra heldur blaðamannafundi þar sem hann boðar lagasetningu eftir nokkrar vikur. Í Íslandsbankamálinu, sem við erum með til meðferðar hér í dag, erum við mikið að ræða um orðsporsáhættu. Sá vandi er svo sannarlega líka fyrir hendi hér. Ríkið þarf að hafa trúverðugleika gagnvart fjármálamörkuðum og trúverðugleika gagnvart almenningi. Maður veltir því fyrir sér með þessar hugmyndir hæstv. fjármálaráðherra — hann talar eins og tvær útfærslur, sem eru í grundvallaratriðum ólíkar, séu í reynd hin sama — hvort það sé hið sama að ríkið standi við skuldbindingar sínar og að það geri það ekki, að það sé það sama. Getur verið að í öllu hjalinu um orðspor stjórnvalda felist einhver leyndur draumur meiri hlutans um að öðlast orðspor stjórnvalda í Suður-Ameríku? Er það nálgunin? Er það virðingin fyrir eignarréttinum? Er það sýnin á það hvernig fara á með fjármál ríkisins í þessum meiri hluta þegar þau telja ekki tímabært að kalla fram svör við grundvallarspurningum um lagalega hlið þessa máls?