153. löggjafarþing — 31. fundur,  15. nóv. 2022.

lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.

[13:41]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Það er náttúrlega gjörsamlega óþolandi að við þurfum að koma síendurtekið upp í pontu Alþingis til að ræða hvernig meiri hlutinn valtar yfir minni hlutann í nefndum þingsins. Ég sit ekki í hv. fjárlaganefnd en ég hef alveg orðið vör við þetta og vitni að þessu og orðið fyrir þessu í annarri nefnd sem ég sit í, velferðarnefnd, í gegnum árin. Auðvitað ætti það að vera sjálfsagt að ef stjórnarandstaðan telur þörf á að fá frekari upplýsingar og álit frá óháðum lögfræðingum og aðilum til þess að aðstoða sig í sínu eftirlitshlutverki — þá ætti svarið að sjálfsögðu að vera já. Og ef svarið er ekki já, bara strax, þá ættum við að spyrja okkur: Af hverju ekki? Hvað er verið að fela? Því það er ekkert sjálfsagðara en að gera þetta. Þetta er risastórt mál í ljósi sögunnar. Við erum að díla við risastórt klúður fjármálaráðherra við sölu á Íslandsbanka. Er verið að segja mér, eftir það klúður, að við ætlum bara að treysta honum (Forseti hringir.) og hans sérpantaða lögfræðiáliti og ekki biðja um okkar eigið lögfræðiálit frá þinginu? (Forseti hringir.) Hv. formaður fjárlaganefndar er hér í salnum. Ég vona svo innilega að hann komi hingað upp og útskýri fyrir okkur hvers vegna ekki er orðið við þessari sjálfsögðu kröfu stjórnarandstöðunnar í fjárlaganefnd. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)