153. löggjafarþing — 31. fundur,  15. nóv. 2022.

lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.

[13:43]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ég er ósammála þeim hv. þingmönnum sem hafa lýst furðu sinni á þessu háttalagi stjórnarliða í fjárlaganefnd vegna þess að þetta kemur bara ekkert á óvart. Hæstv. fjármálaráðherra ætlaði að nýta tækifærið og sópa síðustu syndum hrunstjórnanna undir teppið og við skulum ekki gleyma samhenginu. Við skulum ekki gleyma því að loforð Framsóknarflokksins um 90% íbúðalán bjó til þennan óskapnað sem fjármálaráðherra vill nú losna við og var eiginlega bara grunnurinn að hruninu; stærstu hagstjórnarmistök Íslandssögunnar sem lögðu grunninn að öllu ruglinu sem fylgdi fram að hruni. Nú ætla sömu flokkar í ríkisstjórn, með liðsinni þess þriðja, að sópa þessum syndum undir teppið og neita þinginu um að fá lögfræðiálit, hvort það standist lög. Ég hélt að við hefðum lært eitthvað. Ég hélt að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu lært eitthvað af sögunni.