lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að segja að ég held að fjárlaganefnd geti almennt ekki kvartað yfir því að fá ekki fram það sem óskað er eftir, hvort sem það eru fulltrúar minni hluta eða meiri hluta. Alla jafna reynum við að verða við öllu því sem um er beðið, ótal spurningar eru á hverjum einasta fundi og eins í framhaldinu og við höfum ekki verið að setja okkur upp á móti því, eðlilega, því að við viljum oftast reyna að kafa eins vel og djúpt ofan í mál og við mögulega getum.
Hvað varðar þetta tiltekna lögfræðiálit þá sagði ég það um leið og ég útskýrði hvers vegna, eftir leiðsögn, að við hefðum lagt þetta til þegar og ef það kæmi mál. Þrátt fyrir að hæstv. fjármálaráðherra hafi sagt í viðtali að hann hyggist leggja fram mál um að slíta sjóðnum innan einhverra vikna þá höfum við enn þá ekki fengið neitt í hendurnar. Ég lét það líka fylgja þegar ég sagði þetta að ef við fengjum mál til okkar og þörf væri talin á því að fá eitthvert sérstakt álit umfram það sem við værum með í höndunum þá myndum við að sjálfsögðu verða við því. (Forseti hringir.) Leiðbeiningarnar eru þær því að við erum ekki formlega með neitt mál í höndunum. Skýrslu var skilað til Alþingis og hún er ekki til umfjöllunar inni í nefndinni sem slík. (Forseti hringir.) Við getum fundað og fjallað um ýmislegt í nefndunum án þess að vera með tiltekin mál á dagskrá að öðru leyti sem kalla á umfangsmikil álit.