153. löggjafarþing — 31. fundur,  15. nóv. 2022.

lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.

[13:47]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Mér líður svolítið eins og ég sé viðstödd tvíeggja tvíburafæðingu, að vera að ræða þetta mál núna og eiga umræðuna um Íslandsbankaskýrsluna síðan eftir. Bara til að hnykkja á því sem þar kemur fram þá er gagnrýnt að meginmarkmið og viðmið hafi verið á reiki, upplýsingagjöf til Alþingis í molum og ekki til þess fallin að draga upp skýra mynd af tilgangi, ekki hafi verið tekið tillit til mögulegrar orðsporsáhættu og fullt jafnræði ekki verið tryggt. Þetta eru atriði sem lögfræðiálit myndi hjálpa okkur við að taka afstöðu til. Ég er ekki að vantreysta orðum formanns fjárlaganefndar en ég tek undir þá skoðun að mögulega sé verið að hengja sig í formsatriði. Ég hef setið í nefndum, t.d. velferðarnefnd, þar sem óskað hefur verið eftir gögnum um mál sem ekki eru tæknilega í meðferð hér í þingsal en nefndin er að skoða og það hefur ekki verið stoppað á svona formsatriðum. Við eigum fullan rétt á, fjárlaganefnd fyrir hönd þingheims, að fá þetta lögfræðiálit. Það mun ekki vinnast tími til þess ef svo fer að málið komi á síðustu metrunum fyrir jól og það eigi að keyra það í gegn. Því miður tel ég ástæðu til að óttast það.