153. löggjafarþing — 31. fundur,  15. nóv. 2022.

lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.

[13:49]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram að ég trúi því ekki að hæstv. fjármálaráðherra komi hér með frumvarp fyrir jól, eða á næstu vikum eins og formaður fjárlaganefndar sagði, um slit á ÍL-sjóði. Það tel ég vera stórkostleg mistök. Fjármálaráðherra gerði einnig stórkostleg mistök á blaðamannafundi sínum um daginn um málið. Verð skuldabréfanna hefur þegar lækkað mikið í kjölfar þessa fundar og t.d. hefur Gildi lífeyrissjóður fært niður bréfin um 10 milljarða kr. og miðar útreikning sinn núna til lífeyrissjóðsþega við það. Þetta eru stórkostleg mistök og það að ætla að fara að stytta gildistíma bréfa sem eru með gjalddaga 2024, 2034 og 2044 við árið 2022 er algjört óráð. Skaðabótakrafan verður framtíðarvaxtagreiðslur og framtíðargreiðslur til lífeyrissjóðanna samkvæmt skuldabréfinu sem miðar við vexti 3,75% plús verðtryggt. Það verður krafan um bætur. Það verður krafan um skaðabætur frá lífeyrissjóðunum og það er mjög einföld krafa og það að íslenska ríkið ætli ekki að standa við skuldbindingar sínar á skuldabréfum sem voru gefin út 2004 mun hafa gríðarleg áhrif á trúverðugleika íslenska ríkissjóðsins.