153. löggjafarþing — 31. fundur,  15. nóv. 2022.

lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.

[13:51]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Í 26. gr. laga um þingsköp Alþingis segir að á starfstíma sínum sé nefnd hvenær sem er heimilt að fjalla um mál sem heyrir undir málefnasvið hennar þó að þingið hafi ekki vísað því sérstaklega til nefndarinnar. Hér er um að ræða mál sem er verðlagt á um 200.000 millj. kr. og ef það er ekki mál sem hv. fjárlaganefnd telur þess virði að fara ofan í saumana á þá veit ég ekki hvað á að heyra undir þá nefnd. Sérfræðingar hafa tjáð sig mikið um þetta, m.a. Már Wolfgang Mixa á dögunum í Kastljósi þar sem hann talar um greiðslufall ríkissjóðs ef farin er sú leið sem hæstv. fjármálaráðherra vill fara, sem ekki nýtur mikils trausts í samfélaginu þessa dagana varðandi sýsl með fjármuni almennings. Hæstv. fjármálaráðherra hefur gagnrýnt þetta (Forseti hringir.) en hv. fjárlaganefnd verður auðvitað að skoða þetta mál í þaula og fá álit núna, (Forseti hringir.) ekki eftir að mál eru komin til nefndarinnar og enginn tími gefst til þess.