lögfræðiálit vegna ÍL-sjóðs.
Herra forseti. Mig langar að leita leiðsagnar forseta vegna orða hv. þm. Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur um það að þegar og ef mál kemur frá ráðherra þá sé hægt að skoða það að leita lögfræðiálits. Ég var aðeins að renna í gegnum þingsköp af því að ég kannast ekki við þetta skilyrði. Ég leit aðeins á IV. kafla um eftirlitsstörf Alþingis, sá ekkert um þetta. Getur það virkilega verið svo, virðulegur forseti, að formaður nefndar geti túlkað eftirlitshlutverkið það þröngt að það einskorðist við það að ráðherra hafi lagt fram frumvarp til að við getum skoðað það? Það væru dálítil vatnaskil varðandi eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu. Og þó að ráðherrann sé ekki kominn fram með mál þá skulum við ekki gleyma því að orð hans hafa haft áhrif nú þegar. Þau hafa haft skaðleg áhrif á eignasafn lífeyrissjóðanna, eru farin að hafa áhrif á lífeyri sem verið er að greiða út. Fólk sem er úti á götum í dag er farið að finna fyrir þessu. Þó það nú væri að Alþingi sinnti eftirlitshlutverki sínu. (Forseti hringir.)
Forseti. Ég óska leiðbeiningar frá forseta.