153. löggjafarþing — 31. fundur,  15. nóv. 2022.

Störf þingsins.

[14:22]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Að frumkvæði Katrínar Jakobsdóttur var fyrir nokkru komið á fót framtíðarnefnd. Finnar eru frumkvöðlar í starfsemi framtíðarnefnda og álíta sína framtíðarnefnd eina allra mikilvægustu nefnd finnska þingsins. Í nýliðnum október héldu þeir merka ráðstefnu allra framtíðarnefnda heimsins. Nú þegar landslið okkar í knattspyrnu er að taka þátt í heimsmeistaramóti í olíuríkinu Katar, einu því ríkasta í heimi, er vert að leiða hugann að þeirri staðreynd að olían þeirra er senn fallin úr náðinni en græna orkan okkar orðin að þeim orkugjafa sem knýja mun framtíðina hérlendis sem erlendis. Flest bendir til að sú forríka þjóð sem Ísland er verði á næstu árum mun ríkari þjóð, e.t.v. einhvers konar Katar norðursins. Í því samhengi er rétt að við beinum athygli okkar að veigamestu málum framtíðar. Hvers konar samfélag ættum við að verða? Hvaða gildi ætlum við að innræta börnunum okkar, hvaða áherslur hyggjumst við leggja í samfélagsmálum og í umgengni við náttúruna og þá ekki síst í umgengni hvert við annað? Dæmin um að menn verði af aurum apar eru mýmörg, m.a. í litla eyðimerkurlandinu sem tókst í krafti auðæfa sinna að laða til sín heimsmeistaramótið í fótbolta í ár en hrekkur svo upp við það að það sem þar blasir við öllum þolir alls ekki ljósið. Alþjóðlegir fjölmiðlar hafa ítrekað fjallað um ótrúlegt ofbeldi, til að mynda gagnvart almennum borgurum, samkynhneigðum og erlendum verkamönnum sem þarna hafa að undanförnu látist í þúsundatali. Við skulum vona að græna glópagullið sem hér virðist skrifað í íslensku skýin geri okkur aldrei svo galin að skömm og háðung hljótist af líkt og nú blasir við í Katar. Okkar eigin Katar sér vonandi um að hlúa betur en svo að afkvæmi sínu, framtíðarnefndinni, og einkum þó sjálfri framtíðarþróun Íslands. Við skulum hins vegar taka snarlega til við að hysja upp um okkur gagnvart þeim sem hér liggja óbættir hjá garði í okkar ríka samfélagi og eiga hvorki fyrir mat né húsaleigunni sinni. (Forseti hringir.) Hefjum tafarlaust vegferð mót framtíð sem okkar ríka farsældarfróni (Forseti hringir.) verður fullur sómi að strax í dag, (Forseti hringir.) undir blíðum bjölluhljómi Birgis sem ljúft er að fagna.