153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu Íslandsbanka.

[15:03]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu Íslandsbanka er sláandi. Hún er einn stór áfellisdómur yfir verklagi Bankasýslunnar og yfir verklagi hæstv. fjármálaráðherra. Hún sýnir okkur að hæstv. ráðherra mistókst að tryggja gagnsæi, hæsta verð og jafnræði við sölu á Íslandsbanka. Hann veitti Alþingi misvísandi upplýsingar og tók risastóra ákvörðun um tugmilljarða hagsmuni skattgreiðenda með bundið fyrir augun, án þess að afla fullnægjandi gagna og leggja mat á þau. Þetta liggur fyrir.

Það sem veldur mér mestum vonbrigðum í umræðunni um þessa skýrslu er sá pólitíski leikur sem stjórnarliðar eru að spila enn einu sinni. Þetta er allt einhver pólitískur spunaleikur fyrir þeim. Þau eru sigri hrósandi yfir því að ríkisendurskoðandi noti ekki orðið lögbrot í skýrslunni þó að það hafi aldrei verið hlutverk ríkisendurskoðanda að leika dómara og skera úr um sekt eða sýknu.

Virðulegi forseti. Getum við ekki reynt að hefja þessa umræðu á aðeins hærra plan? Það er einfaldlega allt of mikið í húfi og þjóðin er orðin þreytt á pólitískum leikjum. Fólkið í landinu hugsar: Æ, enn eitt málið, aftur sami maðurinn, ekkert breytist. Áframhaldandi skortur á trausti almennings gagnvart stjórnmálunum er á ábyrgð hæstv. ríkisstjórnar. Hæstv. ríkisstjórn hefur alið á uppgjöf og ég er hrædd um að fólk sé orðið ansi dofið fyrir þessu prinsippleysi. Í skjóli þessa doða stjórnar ríkisstjórn hæstv. Katrínar Jakobsdóttur. Væntingarnar til þeirra eru engar þegar kemur að málum sem þessum. Ég spyr því hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra: Eru engin prinsipp? Snýst þetta allt um persónur, ráðherrastóla og pólitíska leiki fremur en traust til embætta og stofnana sem hér eru undir?