153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

biðlistar í heilbrigðiskerfinu.

[15:09]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Samkvæmt heimasíðu landlæknis bíða 80% þeirra sem þurfa liðskiptaaðgerðir í tvö ár eða lengur eftir að komast í aðgerð. Viðkomandi er kannski nr. 399 á biðlista eftir aðgerð, veikur heima og bryðjandi verkjatöflur og önnur lyf þangað til röðin kemur að honum. En fyrst þarf hann að komast að hjá sérfræðingum og vera á biðlista þar. Síðan þarf hann að komast á biðlista til að komast í aðgerð. Það er grafalvarlegt mál að láta fólk grotna niður á biðlista og það er skylda okkar að aðstoða veikt fólk sem lifir á verkjalyfjum, bólgueyðandi lyfjum og öðrum lyfjum og þarf jafnvel svefnlyf til að geta sofið fyrir verkjum. Biðlistar skaða fólk andlega og líkamlega svo það bíður varanlegan skaða af. Veikt fólk, eldri borgarar og öryrkjar hafa ekki efni á læknishjálp og lyfjum vegna kostnaðar. Fullvinnandi fólk á biðlista eftir liðskiptaaðgerðum hefur ekki efni á að kaupa sig fram fyrir listann og fá aðgerð í Klíníkinni í Ármúla. Eigum við að ráðleggja þessu fólki að fara erlendis? Hvenær á þessari ótrúlega heimsku og fáránlegu aðför gagnvart veiku fólki að linna, að segja að það geti farið erlendis í aðgerð sem kostar þrisvar sinnum meira en innlenda aðgerðin yfir götuna? Það hlýtur að vera kominn tími á að eitthvað sé gert vegna þess að bið eftir aðgerð í meira en ár er svo mannskemmandi að það veit enginn hvernig er að vera í þeirri aðstöðu nema hafa reynt það. Ég hef reynt það. Það ömurlegasta sem maður gerir einstaklingi er að láta hann grotna niður og dæla í hann verkjalyfjum svo mánuðum eða árum skiptir. Það er verið að ganga frá og veikja þann einstakling og koma honum hreinlega bara í örorku.

Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvað er hann að gera í þessu máli og er hann að semja við sjúkraþjálfara og sérgreinalækna?