153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

Fjölþáttaógnir og netöryggismál.

[15:49]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Einn af áherslupunktum þjóðaröryggisstefnu Íslands er að stuðla að auknu netöryggi með áframhaldandi uppbyggingu á eigin getu og í samstarfi við önnur ríki. Við Íslendingar þurfum nauðsynlega að efla samstarf við háskóla í nágrannaríkjunum sem mennta sérfræðinga á þessu sviði og gera háskólum okkar kleift að mennta sérfræðinga til að kenna, ráðleggja og sinna samstarfi fyrir okkar hönd við önnur lönd um netöryggi. Við búum að samstarfi við NATO í þessum efnum, við Evrópusambandið og samstarfi við Norðurlöndin, en til að taka þátt í frekari samstarfi en nú er, sem nauðsynlegt er fyrir okkur, hefur skort sérmenntað fólk. Netvæðing hefur hrundið af stað samfélagsbreytingum og gjörbreytt þörfum og aðstæðum einstaklinga og samfélagsins alls; fyrirtækja, stofnana, vinnumarkaðar, menntakerfis og félagasamtaka. Stafræn tækniþróun hefur áhrif á hagvöxt og sjálfbærni, velferð og jöfnuð, öryggi og lýðræði. Netárásir geta lamað heilu samfélögin og afleiðingarnar geta verið bæði beinar og óbeinar í gegnum falsfréttir. Almenningur veit að netnotkun fylgja hættur en ekki hvar þær leynast helst og hvað er til ráða. Vitundarvakning um það þarf að eiga sér stað. Netárásir eru hernaður á friðartímum og vegið er úr launsátri. Árásirnar geta verið hvaðan sem er í heiminum. Netið er alþjóðlegt og því skiptir alþjóðlegt samstarf miklu máli fyrir netöryggi. Þar þurfum við Íslendingar að vera virkari, við þurfum að vera virkari þátttakendur, eins og áður sagði. Til öryggis verðum við að gera okkur ljóst hvað gæti gerst ef sæstrengirnir, sem halda okkur nettengdum, skemmast allir í einu. Það er ekki líklegt að það gerist en við þurfum að vera undir það búin.