Fjölþáttaógnir og netöryggismál.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu. Fjölþáttaógnir eru vaxandi í hinum vestræna heimi og um heim allan, svokallaðar „hybrid threats“. Fjölþáttahernaður er að verða sífellt meira áberandi og er gjarnan nefndur í sömu andrá og netógnir eða „cyber threats“. Þessi hernaður, fjölþáttahernaður og fjölþáttaógnir, hefur verið til frá fyrstu tíð en internetið hefur gjörbreytt aðstæðum og gert fleirum mögulegt að stunda slíkan hernað og valda ógn á fjölbreyttan máta, m.a. með dreifingu falsfrétta.
Þar kemur menntun inn í dæmið. Í Finnlandi er sérstök menntun fyrir börn og unglinga til að greina og þekkja falsfréttir. Það er mjög mikilvægt að íslenskt menntakerfi hefji strax á grunnskólastigi að bjóða upp á námskeið til að börn öðlist þekkingu á því að greina falsfréttir í samfélaginu. Það er bara eins og að geta lesið sitt eigið samfélag. Einnig er mjög mikilvægt að fræðasamfélagið taki á þessum málum og öðrum slíkum.
Ísland gerðist aðili að evrópska öndvegissetrinu um fjölþáttaógnir í Helsinki í desember 2021, sem sett var á fót 2017. Spurningarnar eru þessar: Hvað hefur áunnist með þessu samstarfi? Hvað hefur gerst? Hvað hefur Ísland fengið út úr þessu samstarfi? Höfum við fengið aukna sérþekkingu inn í landið, í fræðasamfélaginu og meðal almennings?
Ég vil koma að öðru sem varðar netöryggi. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um öryggi net- og upplýsingakerfa 2016/1148 er enn þá í uppkasti hjá sameiginlegu nefnd EES-samningsins. Það er grundvallaratriði að Ísland hefji strax undirbúning að því að innleiða þessar reglur. (Forseti hringir.) Þetta er mjög mikilvæg tilskipun og ég hef sjálfur unnið við hana. Þaðan mun regluverkið koma varðandi netöryggi. Það mun koma frá Evrópusambandinu og vera í þessari tilskipun.