153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

Fjölþáttaógnir og netöryggismál.

[15:53]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa sérstöku umræðu um fjölþáttaógnir og netöryggi og hv. þingmanni fyrir að koma þessari umræðu á dagskrá. Þetta er eitt af stærstu málum samtímans. Í NATO-þinginu er búin að vera gríðarlega mikil umræða um þetta síðustu fjögur, fimm ár. Það er varla rætt meira um einstök mál en netöryggi og fjölþáttaógnir. Við Íslendingar höfum á undanförnum árum tekið okkur svolítið á. Fyrir tveimur árum þegar við ræddum fjárlög veittum við 200 milljónir í öndvegissetrið um fjölþáttaógnir í Helsinki og netöryggissetrið í Tallinn og þetta er allt að ganga í gegn og við erum að hefja þetta samstarf. Við erum byrjuð í Helsinki og erum að komast inn í setrið í Tallinn. Í greinargerð með frumvarpi til fjarskiptalaga í vor, sem var búið að vera hérna í einhver ár í þinginu, varðandi 5G og fjórðu iðnbyltinguna sem er í vændum þar sem 5G leikur lykilhlutverk, var það orðað með þeim hætti að þetta væri taugakerfið í samfélagi fjórðu iðnbyltingarinnar. Það er öllum ljóst að þetta eru grundvallarmálefni sem við erum að ræða hér. Ég vil líka benda á góða skýrslu Björns Bjarnasonar sem hann vann fyrir utanríkisráðherra Norðurlandanna og skilaði af sér 2020, hún fjallar einmitt að miklu leyti um þessi mál, það er komið vel inn á þetta þar. Skýrslan heitir Norræn utanríkis- og öryggismál 2020 og fjallar um loftslagsbreytingar, fjölþáttaógnir, netógnir og áskoranir í fjölþjóðlegu samstarfi innan ramma alþjóðalaga. Þetta er eitt af allra stærstu málunum í samstarfi Norðurlandanna og ég held að meginatriðið sé að við verjum okkur í netöryggismálum okkar og gegn fjölþáttaógnum en við þurfum að gera það í samvinnu við Norðurlandaþjóðirnar, sérstaklega í gegnum NORDEFCO og þann breytta heim sem er að verða til núna þegar Svíar og Finnar ganga inn í NATO. NATO gegnir veigamiklu hlutverki og aðrar þjóðir í NATO en mig grunar að (Forseti hringir.) norræn samvinna í þessum málaflokki sé lykilatriði. — Það er mjög erfitt að tala um þessi mál á tveimur mínútum.