153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

Fjölþáttaógnir og netöryggismál.

[15:58]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða mikilvægt mál sem er um fjölþáttaógnir og netöryggi. Ég tel engu að síður ljóst í ljósi síðustu atburða að við verðum líka að ræða stöðu öryggis- og varnarmála á víðum grunni, enda tengist þetta allt öryggi. Við erum að sjá það að öryggi annarra þjóða, ekki síst vinaþjóða okkar, tryggir okkar eigið öryggi. Eldflaugin sem sprakk í gær frá Úkraínu og fór yfir til Póllands nálægt landamærunum var gagngert til þess að Úkraína gæti varið land sitt og borgara gagnvart harðvítugum og grimmdarlegum árásum Rússa. Líkt og Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, sagði fyrr í dag þá er ábyrgðin Rússa, þetta er þeim að kenna. En hvað segir það okkur? Þetta segir okkur það að í svona viðkvæmum málum, viðkvæmri aðstöðu, þurfa bandalagsþjóðir að standa saman, taka yfirvegaða afstöðu og grípa til aðgerða samkvæmt því og sýna um leið staðfestu, að mínu mati, og öryggi gagnvart þeirri ógn, þeirri ótvíræðu ógn sem stafar af Rússum og ekki síst Pútín. Við skulum heldur ekki gleyma því að þetta stríð er alfarið á ábyrgð Rússa. Við skulum heldur ekki gleyma því að þeim 100 flugskeytum sem var skotið á Úkraínu í gær var ekki beint að hernaðarmannvirkjum. Þeim var fyrst og fremst beint að innviðum, raforkuinnviðum, og að borgum og borgurum Úkraínu. Markmið Rússa er alveg skýrt, það er að skapa óreiðu, granda raforkukerfi Úkraínu. Þeir beina árásum sínum markvisst að borgurunum, eins og ég segi. Þetta eru ekkert annað en stríðsglæpir. En þetta hefur líka þessi óbeinu áhrif, m.a. á okkur, á matvælaöryggi okkar, fæðuöryggi okkar. Raforkuöryggið og fæðuöryggið skiptir okkur gríðarlega miklu máli. Árásin á Úkraínu, sem er ein helsta matarkista heimsins, getur leitt til þess að vegna ekki bara mikils mannfalls heldur mikillar landeyðileggingar af hálfu Rússa þá skapast óreiða og öngþveiti og mikil ólga (Forseti hringir.) og hún getur skapað mikla ólgu í vestrænum samfélögum. Það hefur áhrif á öryggi og varnir fólksins og það hefur líka áhrif á það (Forseti hringir.) hvernig við tökum til þess hvernig við ætlum að verja landið, hvort sem það er gegn netógnum eða öðrum ógnum.