Fjölþáttaógnir og netöryggismál.
Herra forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu. Umræðan snýst í raun um tvö eðlisólík mál þótt skyld séu, annars vegar um tæknilegt öryggi innviða og hins vegar um upplýsingar og upplýsingastreymi. Ég tel mikilvægt að við gerum greinarmun þar á. Hvað varðar tæknilega öryggið, hugsanlegar netárásir, tilraunir til að eyðileggja samskiptakerfi jafnvel heilu landanna, er mjög mikilvægt að við vinnum með bandalagsþjóðum okkar og nýtum þá tækni sem þar er til staðar og farin er af stað heilmikil vinna, m.a. innan NATO, við að taka á þessari hættu. En við þurfum líka að efla okkar eigin getu hér innan lands með auknum stuðningi við öryggisyfirvöld hvað þetta varðar. Svo er það hitt, tilraunir og hugmyndir um tilraunir til að stýra umræðu. Þar getum við lent mjög fljótt á hættulegri braut því að falsfréttir koma víða að. Falsfréttir koma stundum frá stjórnvöldum og þá má ekki koma í veg fyrir möguleika á að benda á gallana við slíkar falsfréttir. Við höfum orðið vör við nokkur dæmi, allmörg, á undanförnum árum um að eitthvað sem taldist falsfrétt og var jafnvel lokað á í umræðu á netinu hafi svo bara reynst annaðhvort rétt eða heilmikið til í því. Það var hálfískyggilegt að sjá viðbrögðin við því þegar bifreiða- og geimfaraframleiðandinn Elon Musk keypti samskiptamiðilinn Twitter og lýsti því yfir að hann vildi efla málfrelsi þar, að allmargt fólk, málsmetandi fólk að því er talið var, lýst yfir hreinum efasemdum um gildi málfrelsis. Það má ekki verða þróunin. Við þurfum að hafa trú á almenningi, treysta almenningi, auðvitað efla og kenna gagnrýna hugsun (Forseti hringir.) en ekki reyna að stýra umræðunni.