Fjölþáttaógnir og netöryggismál.
Virðulegi forseti. Eins og fleiri langar mig að þakka málshefjanda fyrir að hefja þessa umræðu. Það er spurt hvort við séum nægjanlega í stakk búin til að mæta fjölþáttaógnum. Ef við ætlum að horfa á nethlutann þá er eiginlega bara hægt að segja: Er á meðan er. Öll þessi kerfi eru mannanna verk, stöðugt er verið að ráðast á þau og við erum aldrei komin fyrir vind í þessum málum.
Í vor var ráðist á Neyðarlínuna og 400 þúsund netárásir urðu á einum degi. Þegar innrás Rússa hófst í mars jukust netárásir á íslenskar stofnanir og fyrirtæki til muna og fyrirtæki eins og CCP og önnur sem eru starfandi á landinu þekkja mætavel hversu mikið er ráðist á Ísland. Við erum ekki eyland í stafrænum heimi. Við erum tengd og reyndar alltaf betur tengd, þökk sé góðri ríkisstjórn sem setti fé í IRIS-strenginn sem náði tengingu í síðustu viku og mun hefja rekstur á næsta ári.
Hér í morgun kom hópur norrænna öryggissérfræðinga í heimsókn til þingsins þar sem hv. 2. þm. Norðaust. tók á móti þeim. Mjög fáir þingmenn komu til fundar við þá. Það hefði verið kostur ef fleiri hefðu mætt.
Að lokum vil ég taka undir með formanni Viðreisnar. (Forseti hringir.) Þessar fjölþáttaógnir varða ekki bara netöryggi. Þetta er miklu stærra og fjölþættara mál sem við verðum að taka alvarlega.