153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

Fjölþáttaógnir og netöryggismál.

[16:15]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Mig langar núna að ræða þær fjölþáttaógnir sem beinast gegn einhverjum mestu grundvallarinnviðum sem við eigum, innviðum lýðræðisins. Þá erum við að tala um upplýsingaóreiðu, falsfréttir, jafnvel beina íhlutun í kosningar í frjálsum lýðræðisríkjum. Þetta eru þær ógnir sem er kannski flóknast að taka á vegna þess að þegar við sem löggjafi þurfum að finna leiðir til að takast á við þessar ógnir þá þurfum við að vega saman ólíka hagsmuni og gæta þess að lækningin verði ekki verri en sjúkdómurinn.

Mig langar að nefna tvö dæmi svo ég skýri betur hvað ég á við. Árið 2005 kom t.d. inn í fjarskiptalög ákvæði um svokallaða gagnageymd vegna þess að lögreglan vildi geta rakið notkun fólks á fjarskiptatækjum. Síðan hefur náttúrlega aðgengi að fjarskiptatækjum gjörbreyst, við erum öll komin með GPS-tæki í vasann og hægt að byggja upp mjög ítarlegan prófíl af okkur á grundvelli notkunarupplýsinga. En enn er það svo að þessi heimild er mjög víðtæk. Öllum upplýsingum um alla fjarskiptanotkun allra Íslendinga er haldið til haga í hálft ár á meðan önnur ríki hafa stigið skref til baka og sniðið þessa heimild að þörfinni þannig að tilteknar tegundir fjarskipta eru svona, aðra svona. Það eru kannski skoðaðir ákveðnir hópar frekar en að það sé bara altæk heimild. Þetta var samþykkt inn í fjarskiptalögin núna í vor aftur, eitthvað sem við hefðum kannski ekki átti að gera.

Svo er það umræðan um að þrengja að möguleikum fólks til að vera nafnlaust eða í einhverju skjóli á netinu. Ég skil alveg tilefnið, fyrirtæki sem stunda netglæpi eru augljós aðili til að taka á, en við megum ekki ganga svo langt að við þrengjum (Forseti hringir.) fjarskipta- og fjölmiðlafrelsi með því, sem er nokkuð ríkt á Íslandi, því að það mun koma niður (Forseti hringir.) á konum og jaðarsettu fólki og ofsóttum hópum um allan heim, fólki sem hefur sótt stafrænt skjól til Íslands, (Forseti hringir.) skjól fyrir stjórnvöldunum sem þau eru að berjast gegn fyrir lýðræði og gegn kúgun. (Forseti hringir.) Það fólk er nefnilega bandamenn okkar og því fólki megum við ekki kasta fyrir róða í þágu einhverra óljósra öryggishagsmuna.

(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna á tímamörkin.)