153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

Fjölþáttaógnir og netöryggismál.

[16:17]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Atburðir gærdagsins kalla ekki bara á fordæmingu og frekari aðgerðir gagnvart Rússlandi, þeir kalla auðvitað líka á það að við metum stöðu okkar sem lands, sem þjóðar, út frá þeirri vaxandi hættu sem steðjar að okkur og öðrum ríkjum og samfélagum vegna stríðsins. Við erum herlaust, blessunarlega, smáríki á Norður-Atlantshafi, en þess þá heldur er sérstaklega mikilvægt að styrkja varnir og viðbúnaðargetu, netöryggi og vera viðbúin gagnvart öllum þessum fjölþáttaógnum eftir því sem aðstæður krefjast og loka ekki augunum fyrir því. Það skapast nú sífellt ríkari þörf á frekari samstillingu og samtali við bandalagsríki okkar í Evrópu og við Bandaríkjastjórn. Til dæmis þarf að vera alveg á kristaltæru — og við í Viðreisn erum eini flokkurinn sem hefur lagt fram tillögu síðan stríðið hófst 24. febrúar, um það hvernig við eigum að endurmeta þörf okkar fyrir varnir og öryggi. Þess vegna þarf m.a. að meta það, það hefur ekki mátt ræða það innan ríkisstjórnar, hvort það eigi með einhverjum hætti að bæta við varnarsamning okkar við Bandaríkin þannig að hann taki með ótvíræðum hætti til netöryggismála, fjölþáttaógna, mikilvægi órofinna samgangna, flutninga og sæstrengja. Gleymum ekki því að það voru rússnesk herskip fyrir nokkru síðan, í ágúst fyrir einu og hálfu ári síðan, hér fyrir utan landsteinana og á landgrunninu m.a. að kortleggja hvar sæstrengirnir væru. Þannig að allt þetta skiptir máli og á að vera liður í vörnum okkar gegn fjölþáttaógnum. Við eigum að fara í það að endurmeta stöðuna, ekki síst í ljósi stríðsins og hvernig, ef til þess þyrfti að koma, sem ég vona ekki, ætti þá að virkja varnaraðstoð bandalagsríkjanna.

Fyrst og síðast megum við ekki vera með bundið fyrir augun þegar kemur að þessu. Heimurinn er að breytast, ógnirnar eru margvíslegar og við verðum að taka á móti þeim með samstilltu átaki og með samstöðu. Það gerum við helst með því að þetta þing hér komi saman og endurmeti stöðu Íslands þegar kemur að vörnum, ógnun, hvort sem er á sviði öryggis á landi eða gagnvart fjölþáttaógnum.