Fjölþáttaógnir og netöryggismál.
Frú forseti. Ég þakka líka fyrir góða umræðu. Ég vil nefna þrennt í mínu síðara innleggi hér. Í fyrsta lagi hvað varðar fjárframlög þá hafa þau verið aukin markvisst á undanförnum árum. Það er gert ráð fyrir aukningu til þessa málaflokks í fjármálaáætlun sem nemur 2,2 milljörðum á tímabili fjármálaáætlunar. Ef við horfum bara einangrað síðan á fjarskiptaöryggismálin er verið að gera ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpi að þau framlög verði tvöfölduð, fari úr 304 milljónum upp í hartnær 750 milljónir í fjárlögum ársins 2023. Það hefur verið bent á að það þurfi aukna fjármuni til að tryggja fullnægjandi innleiðingu nýrra fjarskiptalaga þannig að það er ekkert útilokað að slíkar tillögur verði gerðar hér við 2. umr. fjárlaga eða í næstu fjármálaáætlun. Við erum að auka þessa fjármuni markvisst og við erum líka búin að vera að vinna mjög markvisst að innviðunum sem er næsti punktur sem ég vil koma að. Ég vil minna á þriðja fjarskiptastrenginn sem við hófum undirbúning að 2019, hann tífaldar hér fjarskiptaöryggi og er alveg gríðarlega mikilvægt innviðamál til að tryggja öryggi en líka fjölga tækifærum á Íslandi.
Ég vil líka nefna alþjóðlegt samstarf, af því að það hefur aðeins verið undir. Netöryggissetur Atlantshafsbandalagsins í Tallinn, sem við höfum verið að setja aukna fjármuni í, þar höfum við nú verið aðilar lengi. Evrópska öndvegissetrið í Helsinki um fjölþáttaógnir, við urðum aðilar þar 2021 og erum líka að auka framlögin þar, þannig að við erum að styrkja okkur alþjóðlega.
Að lokum um það sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nefndi. Þetta er tvennt, ég er alveg sammála því. Annars vegar erum við að tala um það sem við getum kallað vélbúnaðinn og hins vegar hugbúnaðinn, þ.e. hina áþreifanlegu innviði en síðan hina ósnertanlegu innviði samfélags. Þá getum við einmitt verið að ræða lýðræði og upplýsingaóreiðu. Ég vil bara ljúka þessu með því að rifja það upp að sem menntamálaráðherra beitti ég mér fyrir því að gagnrýnin hugsun fór inn í aðalnámskrá og ég tel að það sé auðvitað mikilvægasta vopnið sem við eigum (Forseti hringir.) gegn upplýsingaóreiðunni. Ég held að unga kynslóðin sé í raun og veru að sýna það í verki að þau eru mjög fær um að takast á við þennan flókna veruleika (Forseti hringir.) sem við búum við, kannski miklu færari en við sem eldri erum, og ég held að það skipti máli að efla þá hæfni.