153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

Niðurstöður nefndar sem skipuð var til að greina áfallastjórnun íslenskra stjórnvalda í Covid-19 faraldrinum, munnleg skýrsla forsætisráðherra. .

[18:04]
Horfa

Daníel E. Arnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir munnlegu skýrsluna. Einnig vil ég þakka þeirri nefnd sem skipuð var til að greina áfallastjórnun íslenskra stjórnvalda í Covid-19 faraldrinum. Skýrslunni var skilað 25. október sl. og er afar ítarleg og gefur góða sýn á viðbrögð stjórnvalda, fagfólks og vissulega samfélagsins alls. Það er í raun magnað að hugsa til baka til þessara tveggja ára rúmlega þar sem Covid gekk yfir samfélagið allt.

Fyrir mig er ávallt auðvelt að muna hvenær Covid hófst en fyrsta smitið var greint á afmælisdeginum mínum. Því deili ég afmælisdegi með Covid á Íslandi. Þegar fyrsta smitið var greint óraði mann ekki fyrir hve víðtæk og djúpstæð áhrif þessi veirusýking myndi hafa á samfélagið allt. Hæstv. fyrrverandi heilbrigðisráðherra og ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur brást af festu og öryggi við heimsfaraldrinum, bæði hvað varðar sóttvarnaaðgerðir, samráð við sérfræðinga og upplýsingagjöf til almennings en einnig með efnahagsaðgerðum og stuðningi við atvinnulífið.

Í upphafi faraldursins voru flest lönd að reyna að feta sig áfram því að þrátt fyrir að veirusýkingar hafi farið sem eldur um sinu yfir heiminn áður þá er langt síðan jafn landamæralaus og ört smitandi veira var uppi. Flestar alvarlegar veirur síðustu áratuga hafa verið fremur staðbundnar en þessi veira fór yfir öll mörk.

Fyrstu viðbrögð stjórnvalda voru að ákveða að hlusta fyrst og fremst á sérfræðinga. Að vissu leyti, líkt og þáverandi sóttvarnalæknir talaði um, er í raun erfitt að bregðast við því að við vissum ekki við hvernig veiru væri að etja. Á sama tíma voru verkefni sérfræðinga þau að greina veiruna, kynnast henni og átta sig á því hvernig hún hagar sér en jafnframt að passa upp á samfélagið í heild sinni, halda smitum í lágmarki og bregðast við því þegar fólk var veikt. Verkefnið var því vissulega margþætt frá byrjun. Það er okkur mikil blessun sem búum hér á Íslandi hversu vandaða sérfræðinga við eigum, hvort sem þau vinna fyrir opinbera aðila, sóttvarnayfirvöld eða Landspítala. Þar er ég að tala um lækna, hjúkrunarfræðinga, heilbrigðisstarfsfólk og líka rannsóknarfólk hjá einkaaðilum og svo mætti lengi telja. Að treysta þessu fólki var skynsamleg nálgun og öll lögðust þau á eitt fyrir samfélagið í heild sinni. Þá má segja að við höfum sjaldan séð slíkan samfélagsmátt og náungakærleika hverfast utan um okkur öll. Það má líka segja að afskaplega vel hafi verið haldið utan um okkur af þessu vandaða fólki. Því fólki verður seint þakkað nægilega fyrir sín störf.

Viðbragðið á gólfinu var mikilvægt en það var líka stefnumótunin og áætlanagerðin. Þegar óvissustigi almannavarna var lýst yfir í upphafi árs 2020 var staðan jafnóðum kynnt fyrir ríkisstjórn. Skilaboðunum var ávallt komið skipulega til skila til almennings en tónninn varð þyngri og alvarlegri með tíð og tíma. Eins og segir í skýrslu nefndar um áfallastjórnun stjórnvalda í Covid-19, með leyfi forseta:

„Um leið og þessi þungi tónn kemur fram í fréttum birtist einnig samspil og samhæfing, m.a. um miðlun upplýsinga, s.s. í fréttum og viðtalsþáttum, sem almenningur sér og skynjar sem traust á milli aðila innan stjórnkerfisins, s.s. heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknis og landlæknis.“

Samfélagið fékk því fá byrjun öfluga upplýsingagjöf sem leiddi af sér traust á afar erfiðum tímum þar sem það skein í gegn að stjórnvöld hlustuðu einmitt á fagfólkið okkar og tóku þær leiðbeiningar sem þau komu með til greina. Eftir á að hyggja þótti okkur flestum þetta eðlilegt verklag en á sama tíma í löndum víða um heim voru stjórnvöld ekki með sérfræðinga sér við hlið og hunsuðu jafnvel tilmæli þeirra. Þau lönd eiga það sameiginlegt að veiran varð skæðari heldur en þar sem sérfræðingar réðu för og höfðu vissulega til þess traust stjórnvöld, því að hvort tveggja skiptir máli. Það gengur nefnilega ansi skammt að hafa sérfræðinga sem vanda sig að miðla upplýsingum, vinna eftir nýjustu rannsóknum og vinna eftir akademískum vinnubrögðum ef stjórnvöld treysta þeim ekki. Á sama tíma er erfitt fyrir sérfræðinga að koma sínum tilmælum á framfæri ef þau treysta ekki stjórnvöldum. Þess vegna var þetta traust milli þessara tveggja aðila lykilþáttur.

Það er ekki hægt að tala um viðbrögð stjórnvalda án þess að minnast á heilbrigðisráðuneytið og þá sérstaklega hæstv. heilbrigðisráðherra sjálfan á þeim tíma. Það var okkur mikil blessun að hafa þessa sterku og skynsömu konu við stjórnvölinn á þessum tímum. Hæstv. fyrrverandi ráðherra tók við þessu gríðarstóra verkefni af miklu æðruleysi og dugnaði og það sáum við öll. Hún lagði línurnar frá upphafi; að hlusta ætti á sérfræðingana, að miðla upplýsingum til almennings og mynda sterkt teymi til að bregðast við veirunni. Þetta voru lykilatriðin frá upphafi. Frá fyrsta degi var lagt upp með áðurnefnd atriði að leiðarljósi. Það skilaði sér í trausti á stjórnvöldum og því að samfélagið fann fyrir samtakamætti — eitt lykilatriðið til viðbótar, líkt og fram kemur í ítarlegri skýrslu:

„Í kafla 50 er lýst þeirri niðurstöðu að í þeirri miklu óvissu um þá ógn sem ráðafólk, s.s. ráðherrar, varð að horfast í augu við í upphafi faraldurs og axla ábyrgð á aðgerðum megi sjá fylgispekt við sóttvarnalækni. Slík staða er algeng í miklum óvissuaðstæðum sem þessum. En einnig kemur fram að í viðbrögðum hafi heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknir verið í stöðugum samtölum. Heilbrigðisráðherra og ráðuneyti hennar hafi þannig tekið afstöðu til gagna frá sóttvarnalækni og öðrum, og ráðherrann hafi upplýst samráðherra sína um stöðu mála, sem einnig veittu aðhald.“

Í skýrslunni er einnig tæpt á leiðtogastíl hæstv. forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur og það hlutverk sem hún gegndi sem leiðtogi í faraldrinum er skýrt dregið upp í skýrslunni. Þar segir að þeir leiðtogar sem náð hafi bestum árangri í faraldrinum séu einmitt þeir leiðtogar sem litu á trygga samhæfingu viðbragðsaðila og voru opin fyrir nýjustu upplýsingum. Samspil ráðuneytanna, almannavarna og tengdra aðila virkuðu vel og það skilaði sér einnig til samfélagsins alls. Ég vitna enn og aftur í skýrsluna góðu, með leyfi forseta:

„Nánast öll fyrirtæki, stofnanir og samtök í landinu þurftu að bregðast við áhrifum faraldursins á einhvern hátt. Fyrirtæki þurftu að endurskipuleggja rekstur og starfsmannahald, takast á við breyttar forsendur í rekstri og eftir atvikum að bregðast við veikindum starfsmanna eða fjarveru starfsmanna frá vinnu af öðrum ástæðum. Faraldurinn hafði einnig áhrif á almenn viðskipti, ferðalög og margt fleira eins og þekkt er. Allt eru þetta úrlausnarefni sem kalla á forystu, samvinnu og traust á milli aðila innan viðkomandi stofnana og fyrirtækja en einnig út á við, t.d. gagnvart viðskiptaaðilum og starfsfólki.“

Þrátt fyrir að skýrsluhöfundar hafi fyrst og fremst horft til stjórnvalda og þeirra aðgerða sem komu þaðan er áhugavert að tengja það við samfélagið í heild sinni. Það verður líklega verkefni félagsfræðinga framtíðarinnar. Að því sögðu er í rauninni alls staðar vilji til að vanda sig og gera vel. Það var leiðin út, út fyrir einangrunina og út fyrir sóttkvína.

Eins og ég hef farið yfir voru margir lykilþættir sem þurftu að smella saman til að ná árangri. Einn af þessum þáttum var viðbragð og vinna félagasamtaka. Þar var það vitaskuld Rauði krossinn sem sýndi styrk sinn. Rauði krossinn, í góðu samstarfi við stjórnvöld, stýrði mikilvægum aðgerðum af mikilli þrautseigju. Það er okkur afar mikilvægt að á Íslandi séu öflug og burðug félagasamtök því að þar er oft sérhæfð þekking sem erfitt er að finna annars staðar. Eins hafa félagasamtök oftar en ekki ríkari innsýn og vinna nær fólkinu sem þau standa fyrir. Á sama tíma og skýrslan bendir á hve vel stjórnvöld og samfélagið allt vissulega stóð vaktina í faraldrinum þá megum við ekki horfa fram hjá því að veiran var skæð og lagðist mjög mismunandi á fólk. Þrátt fyrir sóttvarnatakmarkanir og takmarkanir á frelsi og líf okkar allra voru áföllin stærri fyrir það fólk sem er með undirliggjandi sjúkdóma, þau sem veiktust það alvarlega að þau hafa enn eftirköst eftir veiruna og einnig þau sem misstu einhvern nákominn vegna hennar. Þrátt fyrir sumar raddir um að Covid væri eins og hver önnur flensa þá lét fólk lífið vegna sýkingarinnar sem skildi eftir sig djúpstæð sár meðal ættingja og vina. Við megum ekki gleyma að batinn eftir Covid fyrir þá aðila er allt annars eðlis og mun þyngri. Hér á landi voru eftirköst vegna Covid tekin mjög alvarlega og áfram voru settir peningar í Covid skyld málefni sem varða eftirfylgni og endurhæfingu, þjónustu við sjúklinga með langdregin einkenni eftir Covid. Einnig þurftum við að draga mikilvægan lærdóm af faraldrinum sem vissulega heldur áfram um ókomna tíð þrátt fyrir að vonir séu um að hið mesta sé af staðið.

Líkt og skýrslan segir hafa stjórnvöld dregið lærdóm af veirunni, t.d. með stofnun viðbragðsteymis til að vakta þjónustu við viðkvæma hópa en það teymi kallast reyndar í dag teymi um uppbyggingu atvinnu- og félagsmála. Annað dæmi er tekið í skýrslunni en það er stýrihópur um samhæfingu aðgerða sem fékk mikið vægi í ákvarðanatöku. Í þriðja lagi hefur forsætisráðuneytið ráðist í heildstæða greiningu vegna Covid-19. Þetta eru ekki einu dæmin sem nefnd eru í skýrslunni en þau eru mýmörg. Ég hef ekki farið yfir allar þær aðgerðir sem ráðist var í á efnahagslegum forsendum, þar með talið hlutabótaleiðina, viðspyrnustyrkina, lokunarstyrkina, frestun skattgreiðslna, endurgreiðslu virðisaukaskatts, útgreiðslu séreignarsparnaðar og svo mætti áfram telja.

Ég hef dregið saman marga ólíka þætti er varða Covid og viðbrögð við faraldrinum en mig langar líka að ræða ákveðin eftirköst eftir Covid-faraldurinn. Líkt og veiran sjálf þá hafa afleiðingar hennar ferðast yfir landamæri og þegar verið er að tala um ákveðið bakslag, eins og við sjáum t.d. í málefnum hinsegin fólks, í kvenréttindabaráttu, auknum rasisma, má mögulega rekja það til þess að við vorum einangruð í Covid. Oft er þetta gert í nafni tjáningarfrelsis en tjáningarfrelsi á ekki að misnota þennan hátt, til að tala minnihlutahópa niður. Þetta bakslag er að vissu leyti innflutt annars staðar frá en sjaldan ef ekki aldrei hefur verið auðveldara að koma falsfréttum af stað og halda þeim uppi. Falsfréttirnar voru á tíma svo margar að alþjóðleg hagsmunasamtök þurftu að gefa út ákveðna verkferla til að vekja athygli á falsfréttaflutningnum sem og skilja eftir leiðbeiningar til samfélaga og stjórnvalda hvernig ætti að forðast öfgar og í raun bara rangar upplýsingar. Ein þessara samtaka voru ILGA Europe sem eru regnhlífarsamtök hinsegin fólks í Evrópu og Mið-Asíu. Þau samtök gáfu út skýrslu þar sem listuð voru upp sjö atriði þar sem Covid hafði bein áhrif á hinsegin fólk. Fyrst og fremst dró vissulega úr heilbrigðisþjónustu til þessa hóps og þá sérstaklega í litlu landi eins og okkar þar sem flest allt heilbrigðisstarfsfólk var upptekið við faraldurinn. Við erum enn að súpa seyðið af þessu. Þrátt fyrir að viss skilningur sé fyrir hendi á ástandinu verður þó að segja að biðlistar sem mynduðust í Covid, sérstaklega þegar kemur að neðanaðgerðum fyrir trans konur, eru engan veginn ásættanleg staða og í raun mjög skaðleg og hættuleg.

Annar téður þáttur í þeirri skýrslu, sem vissulega er mjög stórt atriði, varðar orðræðu stjórnvalda í faraldrinum. Á meðan sumir þjóðarleiðtogar stilltu minnihlutahópum upp sem afgangsstærð þá var slíkt aldrei gert á Íslandi. Þvert á móti voru ákveðnar réttarbætur þegar kemur að málefnum hinsegin fólks unnar í faraldrinum. Má þar helst nefna lagabreytingar á kynrænu sjálfræði sem er til mikilla bóta fyrir intersex fólk. Þær lagabreytingar fóru í gegnum forsætisráðuneytið á Covid-tímum og voru loks samþykktar af Alþingi um mitt ár 2020. Ekki mörg lönd geta sagt sömu sögu, þ.e. að réttindi minnihlutahópa, í þessu tilfelli hinsegin fólks, hafi verið efld í faraldrinum en ekki dregið úr þeim. Jafnframt er vitað að þær samfélagslegu aðstæður sem skapast í stríði og hamförum með efnahagsþrengingum auka á tíðni kynbundins ofbeldis. Þá skapast líka þær aðstæður að aðgengi að heilbrigðiskerfi og ýmiss konar nauðsynlegri þjónustu skerðist. Íslensk stjórnvöld brugðist hratt og vel við þegar Covid-faraldurinn geisaði og í skýrslu UN Women og Þróunarsamvinnustofnunar Sameinuðu þjóðanna um viðbragðsáætlanir ríkja heimsins við Covid-19 er sérstaklega fjallað um hversu vel til tókst til með úrræði íslenskra stjórnvalda fyrir þolendur kynbundins ofbeldis.

Öll þessi atriði sem ég hef dregið hérna saman eru ákveðinn lærdómur og við þurfum að byggja á þessu. Þetta er afar mikilvægt fyrir allt samfélagið. Byggjum á öllu þessu til framtíðar.