frestun á skriflegum svörum.
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson. Mér hefur heyrst á þessu haustþingi að það sé orðinn fastur liður í störfum hæstv. forseta að tilkynna fresti, sérstaklega þegar beðið hefur verið um skrifleg svör við fyrirspurnum, og það sé orðin regla hjá ráðuneytunum að fara fram á fresti. Ástæður fyrir því geta verið auðvitað margvíslegar og ég hef ákveðinn skilning á því að fólk sé enn að jafna sig eftir uppstokkunina sem fór fram fyrr á árinu. En það hlýtur að vera þannig að framkvæmdarvaldið geti virt þá fresti sem löggjafinn setur þegar beðið er um svör við eðlilegum og mjög mikilvægum fyrirspurnum þingmanna.