153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

frestun á skriflegum svörum.

[11:08]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er uppáhaldsfundarstjórnin mín. Ég keyri upp forritið mitt sem sýnir okkur stöðuna og eins og er þá er meðalsvartími fyrirspurna sem bíða 20 dagar sem er tiltölulega lítið en það er ekki langt liðið á þingið. Meðalsvartími í virkum dögum hingað til eru 20 dagar sem er pínulítið betra en áður, það má alveg hrósa fyrir það. Þarna eru ráðherrar eins og mennta- og barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra sem eru skussarnir með 24 og 25 daga bið á ósvöruðum fyrirspurnum, og kannski helst fjármála- og efnahagsráðherra, hann hefur ekki svarað einni fyrirspurn sem komið hefur frá þinginu, það finnst mér mjög áhugavert. Ég tek undir athugasemd hv. þingmanns og leita einnig liðsinnis forseta. Viðmiðið er 15 dagar, 15 virkir dagar, ekki 20, ekki 25, hvað þá 40 eins og hv. þingmaður vísaði í áðan.