153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

frestun á skriflegum svörum.

[11:09]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. Ég get ekki orða bundist vegna umræðu hér um leka. Cui bono? Hver græðir á lekanum? Hver græðir á því að umræða og fréttaflutningur hverfist um þennan leka frekar en þær brotalamir sem er fjallað um í skýrslunni sjálfri og ábyrgð ráðherra á þeim? Ekki eru það þeir þingmenn sem vilja að hér fari fram skýr og fókuseruð umræða um skýrsluna sjálfa. Ég verð að segja að ég er hundfúll yfir því að þessi skýrsla hafi lekið til fjölmiðla áður en stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kom saman til að fjalla um hana. Ég er líka hissa á því að drög að skýrslunni hafi lekið, drög sem engin þingnefnd, enginn þingmaður, nema þeir þrír sem eiga sæti í ráðherranefnd um efnahagsmál, hafði aðgang að. Ég ætla hins vegar ekki í einhvern dylgjuleik um það hver kann að hafa framið eitthvert trúnaðarbrot. Ég vil biðla til þingmanna að gæta að virðingu Alþingis, bæði að virða trúnað um þau gögn sem við fáum en fara líka ekki fram úr sér í ásökunum á hendur öðrum þingmönnum og nefnd þegar það liggja ekki fyrir neinar vísbendingar um að trúnaðarbrotið hafi átt sér stað þar. Það er bara þannig.