Frestun á skriflegum svörum.
Forseti. Við skulum átta okkur á því að allt þetta tal um leka er afvegaleiðing. Það var svo augljóst að eitthvað svona myndi gerast, að ef það yrði leki færu þingmenn Sjálfstæðisflokksins upp á háa C-ið um eitthvað sem birtist einum degi áður en það átti að birtast hvort eð er. Maður sér svo augljóslega að tilgangurinn með að leka skýrslunni er enginn af því að það kostar bara einmitt svona væl. Að mínu mati, ef talað er um dylgjur, þá eru einu dylgjurnar hérna sem vert er að nefna þær að það hafi verið þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem láku skýrslunni. Í mínum augum er það ekkert flóknara en það, ef við ætlum að fara út í dylgjur varðandi nefndarmenn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eða þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem hagnast augljóslega mest á því að geta verið með svona orðræðu finnst mér augljósara að niðurstaðan sé sú. En ég ætla hins vegar ekki að nota slíkar dylgjur. Ég er bara að vekja athygli á þeim til að hafa það alveg á hreinu að þetta er ekki alvarlegt mál.