Frestun á skriflegum svörum.
Virðulegi forseti. Hér er verið að ræða þennan leka sem kom upp rétt áður en hv. nefnd átti að taka skýrsluna til meðferðar. Eini flokkurinn sem hefur talað um þennan leka og gert eitthvert mál úr honum er Sjálfstæðisflokkurinn. Vinstri græn hafa ekkert verið að tjá sig sérstaklega um þetta eða Framsóknarflokkurinn. Það sem vekur athygli mína er að skýrslunni var ekki bara lekið heldur líka drögunum að skýrslunni. Og hverjir höfðu drögin undir höndum? Ekki var það minni hluti þingsins. Það var ekkert búið að dreifa drögunum til minni hlutans en væntanlega var búið að dreifa drögum til þeirra sem gátu gert athugasemdir við skýrsluna. Hverjir voru það? Ekki minni hlutinn.