evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um evrópska langtímafjárfestingarsjóði.
Helstu atriði frumvarpsins eru að með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, svokallaða ELTIF-reglugerð.
Með reglugerðinni er settur rammi um notkun heitanna „ELTIF“ og „evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir“ fyrir þá rekstraraðila sem kjósa að markaðssetja slíka sjóði. Um efni frumvarpsins og markmið þess að öðru leyti vísast til greinargerðar með því.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið leggur meiri hlutinn til breytingu á 14. gr. frumvarpsins sem er tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif. Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar og breytingartillögu í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
ELTIF-reglugerðin hefur að geyma reglur um evrópska langtímafjárfestingarsjóði og rekstraraðila þeirra. Hér er verið að leggja til að sett verði ný heildarlög um evrópska langtímafjárfestingarsjóði og er það innleiðing ELTIF-reglugerðarinnar. Um er að ræða sjóðategund sem ekki er kveðið á um í gildandi löggjöf er sjóðir sem þessir teljast vera sérhæfðir sjóðir. Þykir því fara betur á að hafa reglur um þessa tilteknu sjóðategund í sérstakri löggjöf.
Tilefni þessarar innleiðingar er sömuleiðis ætlað að stuðla að skilvirkri framkvæmd EES-samningsins. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn: Ágúst Bjarni Garðarsson. Friðjón R. Friðjónsson, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Daníel E. Arnarsson.