sjúklingatrygging.
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hlutans við frumvarpið sem við ræðum hér. Minni hluti velferðarnefndar tekur undir sjónarmið í umsögnum sóttvarnalæknis og Sjúkratrygginga Íslands um að til að koma í veg fyrir misskilning á túlkun laganna og til frekari skýringar þurfi að gera frekari breytingar á lögunum. Ákvæði til bráðabirgða í 1. gr. frumvarpsins á einungis við um bólusetningu við apabólu. Minni hlutinn tekur undir sjónarmið um að ástæða sé til að breyta lögunum þannig að réttindi sjúklinga séu útvíkkuð og þau nái alltaf til bólusetninga á Íslandi sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til gegn smitsjúkdómum. Minni hlutinn telur að standi frumvarpið óbreytt sé svigrúm fyrir fleiri en eina túlkun á gildandi lögum um sjúklingatryggingu þegar kemur að bótaskyldu vegna afleiðinga bólusetninga, líkt og Sjúkratryggingar Íslands benda á. Minni hlutinn leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem er eins og segir í nefndaráliti minni hlutans.
Hv. þm. Guðbrandur Einarsson, sem er áheyrnarfulltrúi í nefndinni, lýsir sig samþykkan álitinu, en undir álitið skrifa, ásamt þeirri sem hér stendur, hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson og hv. þm. Halldóra Mogensen.
Forseti. Það er mikilvægt að samþykkja þessa breytingartillögu núna og það er mikilvægt að ekki sé beðið eftir heildarendurskoðun. Um leið og við samþykkjum bráðabirgðaákvæði við lögin um apabólu og það á að tryggja að ef sá sem er bólusettur verður fyrir sjaldgæfum og alvarlegum aukaverkunum þegar kemur að apabólu, ef það er sérstaklega dregið fram með þessu bráðabirgðaákvæði, þá skapast um leið óöryggi um það að túlkun laganna hingað til hafi verið rétt af hálfu Sjúkratrygginga. Vegna þess að hingað til hafa Sjúkratryggingar bætt bólusettum skjólstæðingi það ef hann hefur fengið sjaldgæfar og alvarlegar aukaverkanir af hvaða bólusetningu sem er sem heilbrigðisyfirvöld hafa mælst til að íbúar landsins gangist undir. Þannig eru lögin túlkuð. Með þessu bráðabirgðaákvæði getur það sett þessa túlkun út á tún eða alla vega er hægt að draga í efa að túlkun Sjúkratrygginga hingað til hafi verið rétt. Þess vegna segjum við: Skýrum frekar bæði 1. gr. og 3. gr. og setjum í báðum tilfellum inn bólusetningu sem heilbrigðisyfirvöld hvetja til. Þá erum við um leið búin að skýra það og renna betri stoðum undir núverandi túlkun Sjúkratrygginga á lögunum.
Ég vona að hv. þingmenn skilji nákvæmlega hvað ég er að segja: Með samþykkt frumvarpsins um bráðabirgðaákvæði vegna apabólu er verið að draga úr trúverðugleika túlkunar Sjúkratrygginga, sem hingað til hefur verið, á lögunum.