153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

sjúklingatrygging.

211. mál
[11:50]
Horfa

Arnar Þór Jónsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna að sjálfsögðu umræðu um þessi mál hér í þingsalnum. Það liggur fyrir að íslensk stjórnvöld hafa hvatt til almennrar notkunar á lyfjum sem ekki hafa fengið markaðsleyfi hér og jafnvel gengið svo langt að hvetja til þess að lyf verði notuð gagnvart ungmennum og fólki sem ekki hefur verið í hættu gagnvart kórónuveirunni. Ég nefni þetta hér vegna þess að ég vil bara undirstrika hvað varðar það frumvarp sem nú er til umræðu að það sé alveg skýrt að þetta miði ekki á nokkurn hátt að því að draga úr eða rýra bótarétt þeirra sem hafa fengið bóluefni vegna annarra veira. Ég vil í þessum sal, fyrst ég er kominn upp í þennan ræðustól, hafa í frammi hér ákveðin orð sem gætu kallast varúðarorð, að fólk kynni sér vel, skoði tölfræði erlendis frá um skaða af völdum efna sem hafa verið notuð sem bóluefni. Það eru tölur sem vekja hjá manni vissan ótta um það að hættur af þessu séu ekki fullrannsakaðar og séu ekki nægilega komnar fram.