hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og andsvarið. Leikurinn er til þess gerður að koma til móts við athugasemdir ESA. Það er aldrei farið af stað til að fara í sama leikinn aftur. Ég held að þegar menn skoða frumvarpið og greinargerðina og það sem hefur komið fram þá ætti öllum að vera ljóst að það er tilgangurinn. ESA er upplýst um gang málsins og fáist frumvarpið samþykkt má ætla að ESA láti málið niður falla. Fáist frumvarpið hins vegar ekki samþykkt má ætla að ESA haldi samningsbrotamálinu áfram og að málinu verði vísað til EFTA-dómstólsins. Ef forsendur hv. þingmanns ganga eftir þá er til lítils unnið því að þá þurfa menn að fara aftur í gegnum þann feril. Eins og kom fram í framsögunni þá eru menn að koma til móts við athugasemdir ESA til þess að þurfa ekki að gera það aftur.