hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .
Frú forseti. Ég held að ég þurfi að endurtaka spurninguna til að fá aðeins skýrari svör. Auðvitað er leikurinn til þess gerður að bregðast við athugasemdum ESA en við þekkjum þess dæmi — við erum t.d. með á þingmálaskrá hæstv. ráðherra frumvarp varðandi niðurdælingu koltvíoxíðs sem er þriðja atrenna að því að koma til móts við athugasemdir ESA, vegna þess að við höfum aldrei náð fyllilega utan um það sem ESA hefur þótt fullnægjandi viðbrögð. Nú á að ná því fram í þriðja sinn í því máli.
Í þessu máli spurði ég hvort ESA hefði lýst afstöðu til þess hvort þessar tillögur ráðuneytisins kæmu til móts við athugasemdir ESA. Ráðherrann svaraði því ekki heldur sagði að ESA væri upplýst um þetta mál og að ætla mætti að ESA myndi láta málið niður falla ef þetta frumvarp yrði samþykkt. Hver ætlar svo? Hvers mat segir að málið muni væntanlega niður falla? Er það ESA sem er með formlegum hætti á einhvern hátt búið að koma því til ráðuneytisins að þetta frumvarp komi til móts við athugasemdir ESA? Vegna þess að ég nenni ekkert frekar en ráðherrann að vera hér eftir ár að ræða annað frumvarp til að laga þau lög sem mögulega verða samþykkt á grundvelli þessa frumvarps vegna þess að við höfum ekki náð almennilega utan um þetta. Leikurinn er til þess gerður að koma til móts við athugasemdir ESA en hefur ESA sagt að þetta mál komi fyllilega til móts við athugasemdirnar?