hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .
Virðulegi forseti. Frumvarpið var borið undir ESA og það bárust ábendingar sem tekið var tillit til. Mér vitanlega kemur Eftirlitsstofnunin aldrei með formlegt álit og segir: Gerið hlutina með þessum og þessum hætti. Ég get því ekki ítrekað þetta neitt meira en á þennan veg, þ.e. að menn fara af stað í þennan leiðangur til að koma til móts við athugasemdir ESA. Til þess er leikurinn gerður. Drögin voru borin undir Eftirlitsstofnunina sem kom síðan með ábendingar og tekið er tillit til þeirra. Mér vitanlega er það ekki þannig að þú fáir — enda held ég að það væri svolítið skrýtið ef slíkar formlegar yfirlýsingar kæmu frá Eftirlitsstofnuninni sem hv. þingmaður er að vísa til og spyrja um.