153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .

390. mál
[12:16]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir spurninguna og innleggið. Þarna erum við í raun að ræða önnur mál. Þetta eru í rauninni bara alger undantekningartilvik. Þetta er framkvæmd sem hefur farið í gegnum lögbundið mat sem hefur verið fellt úr gildi. Það er ekki verið að stytta sér leið í gegnum kerfið.

Síðan eru, eins og hv. þingmaður var að vísa til, sjónarmið varðandi þessa atvinnustarfsemi sem við þekkjum. Þetta snýr í rauninni ekki að því. Það var verið að gera athugasemdir við ferlið og við erum að koma til móts við það. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hafði áhyggjur af því að þetta væri ekki fullnægjandi en þá þýddi það að við þyrftum að fara í gegnum það aftur. Hins vegar benti ég á að drögin voru send til Eftirlitsstofnunarinnar og það komu ábendingar sem voru teknar til greina. Þetta snýr í rauninni bara að ferlinu.

Síðan hafa menn, og við þekkjum það, og ég held að sú umræða muni lifa áfram, mismunandi sjónarmið þegar kemur að fiskeldi í sjó. En þetta snýr ekki að því. Við erum hvorki að leyfa né banna fiskeldi í sjó. Það er komið af stað. En þær reglur sem við höfum undirgengist og eigum að vera með — ESA segir: Þið eruð ekki að gera þetta. Málsmeðferðin er ekki eins og hún á að vera. Við erum þess vegna að koma með frumvarp til að koma til móts við það þannig að við uppfyllum þær reglur sem við höfum ákveðið að gera. Ég veit að þetta hljómar svolítið tæknilegt en ástæðan fyrir því að þetta hljómar svona tæknilegt er að þetta er tæknilegt. Þetta er í rauninni ekki það sem við getum kallað pólitískt. Þetta er ekki þannig að sá sem hér stendur hafi metið að þetta væri forgangsmál í pólitískri stefnumótun ráðuneytisins. Það er ekki svo.