hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .
Frú forseti. Ég varð svo innblásinn af lokaorðum hæstv. ráðherra hér í andsvörum að ég ætla að byrja á að leggja út af þeim. Hann segir að þetta sé tæknilegt mál en ekki pólitískt. Ég ætla að segja já en samt ekki. Vissulega er þetta flókið og tæknilegt frumvarp og tæknilegt úrlausnarefni, en byggir þó á rammpólitískum grunni og ekkert allt of fallegum.
Förum aðeins yfir forsöguna. Það sem hefur verið gagnrýnt við þetta frumvarp á fyrri stigum er að með því sé í rauninni verið að festa í sessi brot á Evrópuregluverki sem var lögfest á síðasta kjörtímabili, haustið 2018, þá í miklu dauðans ofboði. Ef ég man rétt þá var á einum degi afgreitt frumvarp frá þáverandi hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra sem átti að vera klæðskerasniðið utan um rekstur sem var í krísu, utan um mjög afmarkað tilvik þar sem, eins og hæstv. núverandi ráðherra orðaði það, var hætta á óafturkræfu tjóni á verðmætum. Þetta voru rökin og voru þau býsna sannfærandi. Þarna höfðu aðilar farið af stað í sjókvíaeldi á grundvelli umhverfismats, fengið rekstrar- og starfsleyfi á grundvelli þess mats og búið var að setja fiskana á stofn fyrir kvíarnar. Því voru verðmæti til staðar þegar öllum forsendunum var skyndilega kippt undan með því að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála komst að því að umhverfismatið væri ófullnægjandi, fellt úr gildi. Þar með verða þau dómínóáhrif að öll leyfi sem reksturinn hefur eru ógild. Þá vandast málin og niðurstaðan var að leysa úr þessu með sértæku bráðabirgðaákvæði í lögum til þess að hægt væri að veita þessum aðilum rekstrarleyfi þrátt fyrir allt. Ekki voru öll á eitt sátt við þetta í þessum sal þegar þetta var afgreitt. Það var t.d. bent á að með þessu gæti í verstu mögulegu sviðsmynd skapast freistnivandi fyrir rekstraraðila að fela einhvers konar tímasprengjur inni í umhverfismatinu sínu sem gætu látið dómínóáhrif fara af stað aftur og þannig væri hægt að komast auðveldari leið í gegn. Nú man ég ekki alveg hvernig það var.
Eftir sem áður var stóra ágreiningsefnið það sem síðan varð niðurstaða Eftirlitsstofnunar EFTA. Annars vegar á umhverfismat alltaf að vera fyrir hendi þegar farið er í framkvæmdir sem hafa meiri háttar áhrif og hins vegar á almenningur alltaf að eiga möguleika á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þessu tvennu var vikið til hliðar í bráðabirgðaákvæðinu. ESA gagnrýnir það og mun skrifstofa Árósasamningsins væntanlega gera það líka þegar niðurstaða kemur þaðan í máli sem var vísað þangað vegna þessa máls og þessara laga. Þá vaknar spurningin: Af hverju á að búa til einhverja varanlega leið fyrir sambærileg dæmi þar sem kemur í ljós að umhverfismat var byggt á ófullnægjandi forsendum og þess vegna fellt úr gildi? Þá var eftir á að hyggja ekkert umhverfismat fyrir hendi. Þá var framkvæmdin ekki byggð á þeim traustu gögnum sem þarf til að framkvæmdir sem hafa veruleg umhverfisáhrif séu settar af stað. Það virkar hálfkaldhæðnislega, eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur árum saman legið undir ámæli fyrir að vera of sjaldan með náttúrunni í liði í úrskurðum sínum, að þegar við fáum dæmi um að hún standi nokkuð traustum fótum með náttúrunni þá verði viðbrögð stjórnvalda sú að breyta lögum þannig að það sem nefndin gagnrýnir verði allt í einu að löglegum praxís. Það er eitthvað öfugsnúið við það.
Það sem er síðan í ofanálag gert með þessu frumvarpi, fyrir utan að þetta sé gert að varanlegri leið, er að tíminn er í fyrsta lagi lengdur. Lögin frá 2018 heimiluðu 10 mánaða tímabundið leyfi sem mátti framlengja einu sinni til 10 mánaða í viðbót. Nú er í þessu frumvarpi talað um 12 mánuði sem má framlengja til 12 mánaða í viðbót. Þá erum við allt í einu komin með eitthvað sem heitir bráðabirgðaleyfi en stendur samt í tvö ár. Í ýmsum rekstri heitir það bara venjulegt rekstrarleyfi, maður sækir um leyfi og endurnýjar það kannski á tveggja ára fresti. Því er það sem á að vera til bráðabirgða orðið býsna varanlegt.
Vegna þess að gagnrýnin varðandi skort á aðkomu almennings í þessum bráðabirgðalögum er nokkuð sterk þá má í öðru lagi benda á að ekki er búið sérstaklega vel um aðkomu almennings varðandi tillögur Matvælastofnunar að rekstrarleyfum til bráðabirgða. Samkvæmt frumvarpinu er heimilt að gera skriflegar athugasemdir við tillögurnar innan viku frá auglýsingu. Matvælastofnun skal síðan tilkynna Umhverfisstofnun, umsækjendum um rekstrarleyfi og þeim sem hafa gert athugasemdir við tillögur, um afgreiðslu rekstrarleyfis til bráðabirgða. Þetta er dálítið þunnur þrettándi. Þetta er ein vika og ekki er sérstaklega skýrt af orðanna hljóðan hvað á að gera við þessar athugasemdir. Ef ég væri ráðuneytið hefði ég áhyggjur af því að ESA myndi gera athugasemd við þetta alveg eins og í bráðabirgðaákvæðinu.
Þriðja áhyggjuefnið í þessu frumvarpi er að það er almennara heldur en bráðabirgðaákvæðin sem það á að taka við af. Það á að gilda fyrir öll starfs- og rekstrarleyfi. Ég ætla ekkert að beita hugmyndafluginu til að ímynda mér um hvers konar rekstur gæti verið að ræða, en það er ansi viðamikil breyting í regluverkinu til að bregðast við einhverju sem upphaflega snerist um að framkvæmdarvaldið og hluti löggjafans væru kannski að fara fram úr sér varðandi mjög afmarkaðan rekstur. ESA skammar okkur fyrir að hafa verið of liðleg við rekstraraðila í sjókvíaeldi og þá búum við til ansi lausreifað regluverk fyrir allan rekstur. Þetta er ákveðið áhyggjuefni vegna þess að eitt af grundvallaratriðunum í evrópska regluverkinu um umhverfismat er að það megi ekki veita rekstrar- og starfsleyfi nema gilt umhverfismat fari fram. Það er grunnreglan. Því verða allar undanþágur sem eru settar, ef þær eru settar yfir höfuð, að vera eins þröngar og hugsast getur.
Þessi þrjú meginatriði eru það sem hefur verið gagnrýnt út frá textans hljóðan, fyrir utan stóra vandann sem felst í því að þetta sé kannski hreinlega ekki rétta leiðin, að ekki sé rétt að lögfesta ákvæðin sem ESA gagnrýndi okkur fyrir.
Síðan langar mig að nefna tvö atriði þessu tengd. Annars vegar almennan ágalla laga um mat á umhverfisáhrifum sem var settur inn í lögin fyrir að verða 20 árum varðandi það að álit Skipulagsstofnunar bindi ekki hendur leyfisveitanda. Þannig var það einu sinni og manni finnst ekkert óskynsamlegt að álit Skipulagsstofnunar hafi eitthvað að segja þar sem hún er sá sérfræðingur innan stjórnkerfisins sem heldur utan um allar upplýsingar sem tengjast umhverfismati og kemst að niðurstöðu á grundvelli þeirra, hvort um sé að ræða framkvæmd sem hefur svo neikvæð áhrif á umhverfið að ekki sé forsvaranlegt að fara í hana, að þetta sé ekki bara ráðgefandi eins og í lögunum í dag og eitthvað sem leyfisveitandi getur hreinlega ýtt til hliðar þegar svo hentar.
Þetta er gloppa í regluverkinu sem ég held að sé að valda okkur meiri vanda en við kannski áttum okkur oft á. Tökum t.d. slaginn í kringum rammaáætlun. Ég held að hann væri minni ef fólk liti á umhverfismatið sem einhvern mögulegan stoppara á slæmar framkvæmdir, þá væri fólk ekki að leggja jafn mikla orku í rammaáætlunina. Þá er einmitt gott að nefna að við samþykktum hér heildarendurskoðun á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana á 151. löggjafarþingi og þá var einmitt lagt til af minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar að bæta því inn í lögin að óheimilt væri að veita leyfi fyrir framkvæmdum sem Skipulagsstofnun hefði lagst gegn. Það hlaut ekki brautargengi þannig að talsmenn þess að náttúran njóti vafans eru því miður enn of fáir hér í þingsal.
Forseti. Rétt í lokin vil ég fylgja eftir andsvörum mínum við hæstv. ráðherra frá því áðan. Hér er frumvarp sem er að bregðast við ábendingum frá ESA og á það hefur verið bent að mögulega sé verið að festa í sessi það sem ESA hefur gert athugasemdir við. Því megum við mögulega eiga von á því að lenda í sama veseni aftur af þeirra hálfu. Þess vegna spurði ég ráðherra hvort frumvarpið hefði verið staðfest af ESA, hvort ESA hefði lýst afstöðu sinni til þess hvort þessi leið sem ráðuneytið velur að fara komi til móts við þær athugasemdir. Ráðherra segir að það sé nú sjaldnast gert, sjaldnast sé farið til ESA og spurt — (Gripið fram í.) hann segir að það komi ekki formlegt frá þeim en engu að síður er frumvarp á þingmálaskrá hæstv. ráðherra um geymslu koldíoxíðs sem hefur tafist uppi í ráðuneyti og kemur til þingsins síðar en til stóð vegna þess að ráðuneytið hefur óskað eftir formlegri afstöðu frá ESA um álitaefni sem komu fram í umsagnarferli þess frumvarps. Nú er beðið með það frumvarp þangað til ESA og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa fundað um þessi álitaefni. Þetta gerist nefnilega stundum þegar við viljum vanda okkur í þessum málum. Í frumvarpinu um geymslu koldíoxíðs þá skiptir þetta náttúrlega máli því að þar er verið að leggja fram breytingu í þriðja sinn, vegna þess að við höfum aldrei náð að bregðast á réttan hátt við því sem bent hefur verið á að mati ESA.
Ég hefði haldið að í því frumvarpi sem við ræðum í dag þá mætti gera slíkt hið sama. Fyrst það hefur ekki verið gert með formlegum hætti milli ESA og ráðuneytisins þá munum við leita einhverra leiða til að fá þær upplýsingar inn í umhverfis- og samgöngunefnd, eins og við raunar óskuðum eftir núna í vor en fengum ekki tímans vegna. (Forseti hringir.) Það er grundvallaratriði að fá á hreint hvort þetta frumvarp sé, eins og gagnrýnt hefur verið, að lögfesta óboðlega framkvæmd. Til þess getur leikurinn varla verið gerður.