hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þeim sem tóku þátt í þessari umræðu. Mér finnst þau koma með málefnaleg og góð sjónarmið sem sjálfsagt og eðlilegt er að ræða. Ég vona að umræðan verði þannig að hún frekar sé skýrandi heldur en hitt. Síðan varðandi það sem hv. þingmaður vísar í í lokin með koltvíoxíð og geymsluna, við fáum ekki formlegt svar frá ESA út af því og það er svolítið annars eðlis vegna þess að þar erum við að ýta á ákveðnar lausnir, að setja inn í regluverkið, út af okkar hagsmunum þannig að það er ekki sambærilegt en við erum í samtali við ESA og framkvæmdastjórnina varðandi bestu útfærslu þar.
Bara svo það sé alveg á hreinu: ESA telur heimilt að vera með heimildir í lögum til að bregðast við bráðatilvikum. ESA setur hins vegar út á að málsmeðferð samkvæmt bráðabirgðalögum hafi ekki verið rétt og því er frumvarpið lagt fram til að bregðast við þeim ágöllum og það er enginn rekstraraðili sem menn vilja fela einhver atriði í umhverfismati bara til að geta nýtt bráðabirgðaheimildirnar. Það lengir bara ferlið fyrir rekstraraðila. En þeir leggja líka áherslu á að stjórnvöld hafa samþykkt umhverfismat og síðan var það fellt úr gildi. Það bendir til þess að stjórnvöld hafi ekki staðið sig í einhverju í framkvæmdinni. Þannig að það er líka þáttur máls.
Hér hefur komið fram að verið sé að festa í frumvarpinu brot á EES-reglum. Þá er því til að svara að það að löggjöfin heimili veitingu heimilda til bráðabirgða í tilvikum þar sem leyfisveiting hefur byggst á gölluðu umhverfismati er í samræmi við tilskipun. Ágallar sem ESA telur varða skilyrði, útfærslu og málsmeðferð. Frumvarpinu er ætlað að koma til móts við sjónarmið ESA varðandi það þannig að löggjöfinni fylgja tiltekin skilyrði um útfærslur og málsmeðferð og er með frumvarpinu verið að láta brot á EES-reglum gilda um alla leyfisskylda starfsemi. Frumvarpinu er ætlað að tryggja samræmi við EES-reglur. Frumvarpið mælir hins vegar skýrt fyrir um málsmeðferðir, allar undanþágur og bráðabirgðaheimildir fyrir starfsemi sem fellur undir lög um hollustuhætti og mengunarvarnir og lög um fiskeldi. Það eru ýmsar undanþágur veittar í framkvæmdir sem tengjast ekki matsskyldri starfsemi og mál ESA varðaði ekki slíkar undanþágur. Frumvarpið felur hins vegar í sér breytingu á málsmeðferð slíkra undanþága sem telja verður til bóta. Þannig færist ákvörðunarvald frá ráðherra til Umhverfisstofnunar. Skilyrði fyrir undanþágu verða skýrari í lagatextum, auk samráðs við almenning.
Því hefur verið velt upp að frumvarpið feli í sér hvata til að skila ófullnægjandi umhverfismati, þ.e. að rekstraraðili geti treyst á að fá útgefna bráðabirgðaheimild. Hvað matsskyldar framkvæmdir varðar tekur frumvarpið aðeins til tilvika þar sem leyfi hefur verið fellt brott vegna annmarka á umhverfismati. Það þýðir að viðkomandi starfsemi hefur hlotið leyfi á grundvelli umhverfismats að undangenginni þóknanlegri meðferð og uppfylltum skilyrðum, þar með talið að umhverfismatið hafi farið í opið samráð og að fyrir liggi álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat viðkomandi framkvæmdar en það leyfi síðan verið fellt úr gildi vegna tiltekinna annmarka. Það er því ekki hægt að fallast á að í þessu felist hvati til framkvæmdaraðila til að skila inn ófullnægjandi umhverfismati í trausti þess að hljóta heimild til bráðabirgða.
Með heildarendurskoðun umhverfismatslöggjafar með lögum nr. 111/2021, um umhverfismat framkvæmda og áætlana, var lagaramminn vegna umhverfismats skýrður og aðkoma almennings að umhverfismati styrkt í sessi, eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson þekkir mjög vel. Svo er velt upp: Má eiga von á mörgum undanþágum vegna matsskyldrar starfsemi? Almennt er gengið út frá því að sú staða komi ekki upp að leyfi sé fellt úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna gallaðs umhverfismats. Það hlýtur að vera eitthvað sem menn eru að ganga út frá, því að matið á að vera það vandað. Markmið stjórnvalda er ætíð að vandað sé til umhverfismats og það sé í samræmi við gildandi kröfur. Telja verður að ef komi til veitingar bráðabirgðaheimildar vegna matsskyldrar starfsemi þá muni slíkt heyra til algerra undantekninga.
Ég veit ekki hvort það er eitthvað fleira sem kom fram annað en að það er svolítið látið að því liggja og má svona skilja, þótt ég ætli ekki að leggja neinum orð í munn, að þetta verði einhvers konar meginregla, undanþágur. Aftur, það er afar fátítt að sú staða komi upp að leyfi sé fellt úr gildi sökum annmarka á umhverfismati. Það má kannski spyrja í þeim fáu tilfellum sem það gerist hvort slík staða fái þá ekki alltaf bráðabirgðaheimild. Þá ber að horfa til þeirra viðbótarskilyrða sem mælt er fyrir um í frumvarpinu. Frumvarpið gerir ráð fyrir að bráðabirgðaheimild sé aðeins veitt í sérstökum undantekningartilvikum og ríkar ástæður mæli með veitingu bráðabirgðaheimildar. Skilyrði um ríkar ástæður tekur væntanlega til aðstæðna þar sem leyfishafi er þegar tekinn að nýta leyfið og starfsemi er hafin. Þá þarf umsækjandi að gera grein fyrir tilgangi, ástæðum og fyrirhuguðum aðgerðum og gildistíma bráðabirgðaheimildar. Það er bara hvernig hann getur komið starfsemi í það horf að hún byggi á fullnægjandi umhverfismati.
Bara svo það sé alveg skýrt varðandi aðkomu almennings um að tjá sig um leyfisveitingar: Með frumvarpinu er aðkoma almennings tryggð og aukin frá því sem áður var. Almenningur getur tjáð sig um veitingu undanþágu eða bráðabirgðaheimildar, þá er ákvörðun um veitingu undanþágu eða bráðabirgðaheimildar kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Endanleg leyfisveiting starfsemi sem hlotið hefur bráðabirgðaheimild er þannig afgreidd að undangengnu samráðsferli við almenning, auk þess sem endanleg ákvörðun um afgreiðslu leyfis er einnig kæranleg.
Mér finnst erfitt að finna rök fyrir því að þetta sé eitthvað annað en til bóta og svo sannarlega er uppleggið þetta, það er verið að koma til móts við það sem hefur margoft komið fram, það voru ágallar, það komu athugasemdir frá ESA og í grunninn er það það sem menn eru að koma til móts við. Ég held að það sé erfitt að halda því fram að það hafi ekki verið unnið af fullum heilindum og einurð og ég vek líka athygli á því að ef það myndi ekki takast þá þarf sá sem hér stendur að koma aftur. Það er bara þannig. Ég hef mjög gaman af því að vera hér í ræðustóli Alþingis en þetta er ekki alveg mál sem er í forgangi hjá mér og ég vona að ég þurfi ekki að koma aftur með svona mál.