menningarminjar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Ég held að hv. þingmaður hafi algjörlega hitt naglann á höfuðið þegar kemur að því sem við þurfum að líta til. Það er náttúrlega stór munur á því þegar þú ert að tala um sárafá hús. Staðreyndin er bara sú að á Íslandi eru fá gömul hús. Maður fer til Evrópu og þá þykir ekkert tiltökumál að þú sért að gista í húsum sem eru mörg hundruð ára gömul meðan við erum með mjög fá. En núna er þeim að fjölga hratt þannig að það þarf að bregðast við því. Hv. þingmaður er að vísa til verkefna sem bæði það góða sveitarfélag Hafnarfjörður og önnur eru að eiga við. Við þurfum auðvitað að líta til þess líka. Við höfum kannski lítið rætt þetta en núna er kominn sá tími að við þurfum að skoða þetta og gera nauðsynlegar breytingar. Ég vil kannski svolítið bara endurtaka það sem hv. þingmaður sagði. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður skildi málið alveg rétt. Þannig að ég vil bara staðfesta það.