153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[12:56]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og andsvarið. Í hinum fullkomna heimi er þetta einhvern veginn þannig að við verndum það sem við viljum vernda en annað hefur sinn gang og sína þróun. Svo er tvennt í þessu: Hvað á að vernda, hvaða hús í þessu tilliti, og með hvaða hætti? Við erum að búa til eitthvert umhverfi sem mætir því.

Ég skil vel sjónarmið hv. þingmanns og eðlilegt að menn hugsi af hverju við miðum ekki bara við 1918 eða eitthvað slíkt. Mér finnst mjög mikilvægt að hv. nefnd fari vel yfir málið og skoði það, en rökin fyrir því eru eins og hv. þingmaður vísar til að núna erum við með einhver 1.000 friðuð hús og við myndum aflétta allri friðuninni án þess að hafa skoðað þau sérstaklega. Það er í raun ástæðan fyrir því að menn stíga varlega til jarðar. Heildarendurskoðun gæti komið með einhver önnur sjónarmið en ég held hins vegar að menn myndu alltaf líta til þess að við værum ekki að ganga þannig fram að einhver friðuð hús, sem við viljum friða út af okkar menningarsögu, myndu hverfa af vettvangi og ekki koma aftur. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hv. þingnefnd skoði þetta sérstaklega og kalli til alla sérfræðinga til að ræða þetta. Hins vegar liggur í það minnsta á að samþykkja frumvarpið eins og það er núna, því að annars horfum við fram á mjög mikið álag á stjórnsýsluna og ýmsa hluti sem, eins og kom fram hjá hv. þm. Ágústi Bjarna Garðarssyni, er einn þáttur sem við þurfum sérstaklega að líta til.