menningarminjar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Mig langar í framhaldinu að spyrja hversu langt á veg heildarendurskoðunin sé komin, hvort við megum eiga von á henni á þessu kjörtímabili.
Síðan vil ég halda áfram með það sem ég byrjaði á í lok fyrra andsvars. Einhvern veginn hefði ég talið mikilvægt að fjármagn og kraftar stjórnsýslunnar færu í að skoða heildarmyndina á húsum á einhverju aldurstímabili og velja þá kannski fulltrúa fyrir ákveðna húsagerð frekar en að aldursfriða einhver 1.000 hús sem hafa misst mikið gildi og er fjöldi þeirra kannski mjög svipaður.