153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

starfsemi stjórnmálasamtök.

29. mál
[17:39]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Þetta er breyting á lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka um að fjarlægja bein framlög frá lögaðilum. 1.–3. mgr. 7. gr. laganna orðast svo með leyfi forseta:

„Stjórnmálasamtökum er óheimilt að taka á móti beinum framlögum frá lögaðilum. Allir afslættir lögaðila af vörum og þjónustu sem veittir eru af markaðsverði skulu sérgreindir í reikningum. Lögaðilar sem inna af hendi einhvers konar framlög til stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda, í formi afslátta eða hvers konar efnislegra gæða, skulu sérgreina heildarfjárhæð slíkra framlaga í ársreikningum sínum og gera Ríkisendurskoðun sérstaklega grein fyrir þeim afslætti. Telja skal saman framlög tengdra aðila. Afslættir mega ekki vera umfram það sem öðrum viðskiptavinum stendur almennt til boða. Stjórnmálasamtökum er heimilt að taka á móti framlögum frá lögráða einstaklingum sem nemur allt að 550.000 kr. á ári.“ — það er óbreytt upphæð miðað við núna — „Stjórnmálafélögum innan samstæðu stjórnmálasamtaka er þó heimilt að taka á móti framlögum frá einstaklingum umfram þetta, samtals að hámarki 100.000 kr. Frambjóðendum er heimilt að taka á móti framlögum frá lögráða einstaklingum sem nemur allt að 400.000 kr. á ári. Stofnframlög, þ.e. framlög frá lögráða einstaklingum sem eru veitt í beinum tengslum við stofnun stjórnmálasamtaka, mega að hámarki nema sem svarar til tvöföldu hámarksframlagi skv. 1. málsl. 2. mgr.“

Markmið laga nr. 162/2006 er samkvæmt 1. gr. „að auka traust á stjórnmálastarfsemi, tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi stjórnmála“. Fram kemur í greinargerð frumvarps til þeirra laga, sem sagt um starfsemi stjórnmálasamtaka, að markmiðið sé jafnframt að berjast gegn spillingu. Kveðið er á um hámarksfjárhæðir sem stjórnmálasamtök mega taka á móti frá einstaklingum annars vegar og lögaðilum hins vegar í 7. gr. laganna. Tilgangur með hámarksfjárhæðum er sá að enginn einn aðili geti í krafti fjárhagsstöðu sinnar styrkt stjórnmálasamtök um það háar fjárhæðir að hætta skapist á spillingu. Þessar fjárhæðir mættu alveg vera lægri en ég ákvað að hafa upphæðirnar óbreyttar frá núverandi lögum og breyta bara fyrirkomulaginu. Það er síðan annar bardagi að lækka upphæðina. Hætt er við að stjórnmálasamtök eða stjórnmálafólk freistist til að gæta frekar hagsmuna styrktaraðila umfram hagsmuni almennings þegar svo stendur á. Því er mikilvægt að borgararnir njóti jafnræðis þegar kemur að styrkveitingum. Þeir einstaklingar sem eiga fyrirtæki geta ekki aðeins styrkt stjórnmálasamtök persónulega heldur einnig í krafti fyrirtækja sinna. Þetta fyrirkomulag er ólíðandi í lýðræðissamfélagi og fer í raun þvert á markmið laganna um að tryggja gagnsæi, jafnræði og að berjast gegn spillingu. Því er lagt til í frumvarpi þessu að fella brott heimild lögaðila til að styrkja stjórnmálasamtök og stjórnmálafólk með beinum hætti. Fyrirtæki geta einnig styrkt stjórnmálasamtök óbeint. Það er ekki óalgengt að fyrirtæki gefi jafnvel þjónustu sína eða veiti meiri afslátt en gengur og gerist gagnvart öðrum viðskiptavinum. Því er nauðsynlegt að greint sé frá því á gagnsæjan hátt til þess að aðrir viðskiptavinir geti notið sömu kjara.

Þetta er í rauninni mjög einfalt þegar allt kemur til alls; ef einhver fyrirtækjaeigandi vill endilega styrkja stjórnmálasamtök þá gerir hann það sem einstaklingur eins og allir aðrir, en ekki bæði sem einstaklingur og sem fyrirtæki. Það er í rauninni stóra breytingin í þessu, einu sinni frá hverjum aðila.